Jólakveđja
24. desember 2007 klukkan 16:48
Kæru vinir
Í ár eru aðstæður bara þannig að þessi kveðja kemur í stað jólakorts en ég lofa að koma sterk inn á næsta ári og senda kort. Þakka kærlega fyrir kortin frá þeim sem höfðu fyrir því að senda. Mér finnst sko agalegt að fá kort en senda ekki, þar sem ég er venjulega sú sem sendi alltaf. En vikan sem átti að fara í jólaundirbúning og starfsþjálfun fór aðeins öðruvísi en áætlað var en maður stjórnar víst ekki öllum hlutum... jafnvel þó maður sé control-frík!
Hafið það sem allra best yfir jólahátíðina... kossar og knús!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þakka öll skemmtilegheitin á liðnu ári
... og árunum þar á undan!
Hittumst hress á því næsta... já eða sum ykkar bara milli jóla og nýárs.
Þakka öll skemmtilegheitin á liðnu ári
... og árunum þar á undan!Hittumst hress á því næsta... já eða sum ykkar bara milli jóla og nýárs.
Í ár eru aðstæður bara þannig að þessi kveðja kemur í stað jólakorts en ég lofa að koma sterk inn á næsta ári og senda kort. Þakka kærlega fyrir kortin frá þeim sem höfðu fyrir því að senda. Mér finnst sko agalegt að fá kort en senda ekki, þar sem ég er venjulega sú sem sendi alltaf. En vikan sem átti að fara í jólaundirbúning og starfsþjálfun fór aðeins öðruvísi en áætlað var en maður stjórnar víst ekki öllum hlutum... jafnvel þó maður sé control-frík!
Hafið það sem allra best yfir jólahátíðina... kossar og knús!
Tími til ađ fagna
15. desember 2007 klukkan 12:48
Skólinn er búinn!
Þá er ég formlega búin með öll námskeiðin í þessu námi mínu og á því aðeins eftir að klára starfsþjálfun og gera lokaverkefni og þá verður þetta allt búið. Þvílíkur léttir að vera loksins búin að klára öll verkefni þessa önnina en ég er nú samt ekki komin í jólafrí. Stefnan er að nýta virku dagana sem best í starfsþjálfun og nýta svo einhverja frídaga í undirbúning fyrir lokaverkefnið, en ég þarf að gera umsóknir til siðanefndar og persónuverndar í þessum mánuði. En það verður frábært að geta einbeitt sér að þessum hlutum og ég hlakka til að geta átt helgarfrí og slakað á að kvöldi til án samviskubits. Ég sakna samt 3 vikna jólafrísins sem ég hef alltaf fengið undanfarin ár og hefur nýst vel til að hlaða batteríin, en þetta er lokaspretturinn og maður lætur sig hafa það.
Dagurinn í gær var sko vel nýttur og skólalokum fagnað vel. Í hádeginu fór ég með sálfræðingum Sálfræðiþjónustunnar á hádegishlaðborð með jólaívafi á VOX og það var alveg hreint afbragð. Síðdegis var það svo kokteilboð hjá forstöðusálfræðingnum... já svona er maður fullorðins! Loks endaði dagurinn á kandarapartý sem var mjög skemmtilegt og ekki laust við að maður hafi klárað alla orkuna þennan daginn.
Svo minni ég áhugasama á að það eru aðeins sex dagar í Palla á NASA, eins gott að fólk beili ekki á mér sem ætlar með og fleiri eru svo sannarlega velkominir að bætast í hópinn. Þetta verður brjálað fjör og ég get lofað ykkur að það verður dansað... og vá hvað það er langt síðan ég hef dansað (tja... já bara á gay-pride ballinu síðast... ég er orðin gömul).
Farin að huga að jólaundirbúningi