Af hverju í ósköpunum...
30. apríl 2007 klukkan 12:36
... geta veggir milli almenningssalerna og hurðir á þeim aldrei náð upp í loft og niður í gólf. Er virkilega verið að spara með því að hafa ekki heila veggi?
Rás 2 plokkar hringinn
28. apríl 2007 klukkan 19:29
Við Eva Rós skelltum okkur á Rás 2 plokkar hringinn tónleika á Nasa í gærkvöldi. Þetta voru alveg hreint magnaðir tónleikar. Upphitunarhljómsveitin kallast Hjaltalín, en ég hafði aldrei heyrt á hana minnst áður. Þessi hljómsveit var alveg hreint stórgóð og kom manni mjög á óvart. Ég á pottþétt eftir að skoða hana betur. Næst tók Ólöf Arnalds við með afar lágstemda og þjóðlega tónlist. Mjög flott hjá henni og skellti ég mér á diskinn hennar í lok kvöldsins. Því næst stigu Lay Low og félagar á svið og stóðu sig frábærlega. Allur flutningur mjög flottur og ég fattaði hvað það er agalega langt síðan ég hlustaði á diskinn. Í lokin var það svo Pétur Ben ásamt hljómsveit og hann fór svoleiðis á kostum. Seinast þegar ég sá Pétur Ben á tónleikum var það órafmagnað og allt í rólegri kantinum en núna var allur krafturinn settur í flutninginn og hljómuðu lögin því allt öðruvísi en seinast. Pétur setti svo punktinn yfir i-ið með frábærum flutningi á Billie Jean í lok tónleikanna. Nokkuð ljóst að ég þarf að eignast diskinn hans við fyrsta tækifæri.
Eini ókosturinn við tónleikana var hversu fáránlega kalt það var á Nasa. Það var opið út allan tímann og við Eva reyndum að klappa í okkur hita. Annars var þetta alveg frábært kvöld í alla staði, við sátum líka á bestu stað en klikkuðum því miður báðar á myndavél.
Dagurinn í dag hefur síðan farið í ofurlærdóm þar sem ég hef varla stoppað síðan í morgun. Lokaverkefnið mitt í vinnusálfræði er líka að taka á sig lokamynd og spurning hvort ég fari ekki bara að segja stopp. Einhverntíman verður maður að segja þetta gott og skýrslan er nú orðin ansi feit og myndarleg. Planið næstu daga er síðan að læra 16 ritgerðarspurningar utan af þar sem ég fer í próf úr þeim á fimmtudaginn.
Fleira var það ekki í bili.
Verið þið sæl!

Ţađ er...
26. apríl 2007 klukkan 09:44
... akkúrat ekkert að frétta!
Ég er á lífi en eyði öllum mínum tíma ein inn í herbergi að læra nema þegar ég borða og sef.
Fun fun fun
En hvað segið þið, ætlar fólk ekki að djamma 12.maí?

Frábćr tímasetning
22. apríl 2007 klukkan 22:05
Núna er auðvitað hvað mest að gera hjá mér í skólanum og hvað gerist?
Jú jú tölvan mín gafst endanlega upp en það er búið að hægjast ansi mikið á henni undanfarnar vikur. Föstudagurinn fór því meira og minna í að flytja gögn af henni yfir á aðra tölvu áður en hún gæfi endanlega upp öndina. Núna er hún stödd á bráðadeildinni hjá Andra bróður og við vonum það besta. Ég vil biðja ykkur öll um að biðja fyrir henni og vona að hún snúi aftur sem fyrst og hjálpi mér að ljúka önninni. Pabbi lánaði mér svo vinnutölvuna sína yfir helgina, afskaplega mikill munur að vinna á svona nýrri og fínni tölvu, en hann þarf víst að mæta í vinnuna á morgun og þá er ég tölvulaus. Þá er það heimilistölvan sem eftir er og hún er jú alveg ágæt en ekki alveg nógu góð vinnuaðstaða í kringum hana en það verður að reddast. Af þessum sökum tókst mér ekki alveg að standa við skipulagið, ég ætlaði sko að klára lokaverkefnið í dag en það náðist ekki alveg. Ég verð því að ljúka því við tækifæri í vikunni en annars hef ég líka næstu helgi upp á að hlaupa.
Þar sem hlutirnir eiga það til að gerast samtímis þá bilaði bíllinn minn á miðvikudaginn og ég hef ekki getað notað hann síðan. Alveg hreint yndislegt. Stefnan er að láta tékka á honum á morgun en ég hef samt engan veginn tíma í svona bílavesen.
Annars er ég bara hress... þreytt en hress!

Sumariđ er tíminn..
19. apríl 2007 klukkan 12:05
Gleðilegt sumar!
Stefnan er að klára allt skóladót eftir 3 vikur og 2 daga og þá get ég byrjað að njóta sumarsins.
Þetta skal verða skemmtilegt sumar
Bruni, lunch og fleira
18. apríl 2007 klukkan 17:35
Miðborgin að brenna og þvílílk reykjalykt hjá Háskólanum. What to do, what to do? Nokkuð ljóst að ásýnd Austurstrætisins verður ansi breytt á morgun. Við Hafdís og Eva vorum einmitt á Laugarveginum í dag og sáum þvílíkan reyk og slökkvistarfið á fullu, ákaflega spennandi enda fórum við beint á mbl.is þegar við komum upp í skóla til að sjá hvað hefði verið að brenna (sko löggan leyfði okkur ekki að klára að keyra niður Laugarveginn þannig að við sáum þetta ekki nógu vel).
Annars skellti ég mér í lunch með sálfræðiskvísunum mínum í hádeginu í dag. Fórum á hlaðborð á Pizza Hut, sem klikkar auðvitað aldrei, og borðuðum fyrir allan peninginn. Alltaf gaman að hitta stelpurnar og spjalla almennilega.
Ég hélt síðan fyrirlesturinn í vinnu- og skipulagssálfræði kl.16 og gekk fínt en þá er ég loksins búin með öll verkefni annarinnar og aðeins lokaspretturinn eftir. Á næstu vikum þarf ég að gera 50% vinnustaðagreiningu, gera 16 ritgerðarspurningar í afbrigðasálfræði, læra þær utan að og taka próf úr þeim, og læra klíníska taugasálfræði frá grunni og taka tveggja daga heimapróf úr henni. Að auki mun ég líklega klára þjálfunareiningu einhversstaðar þarna á milli. Svo er ég auðvitað að reyna að troða SÁÁ viðtölum inn líka svo ég fái pening í maí og ekki hefur gengið nógu vel að vinna í þessum mánuði (sko ekki mér að kenna).
Sem sagt nóg að gera eins og oft áður. En annars langar mig á tónleika með Pétri Ben, Lay Low og Ólöfu Arnalds á NASA 27. apríl, hverjir eru game? Held það sé alveg tilvalið að skella sér á svona tónleika í miðri ösinni og slaka aðeins á.

Lćrdómur og krúttlegheit
14. apríl 2007 klukkan 08:57
Það er mest lítið að gerast hjá mér þessa dagana. Ég reyni að beina sem mestri orku í lærdóm enda ýmislegt sem ég þarf að gera næstu vikurnar. Enda er ég núna vöknuð fyrir níu á laugardagsmorgni til að hrista eitt stykki vinnusálfræðifyrirlestur fram úr erminni.
Ég kíkti reyndar á Hafdísi, Sveinbjörn og bumbusnúllann í vikunni, aldrei að vita nema það hafi orðið fjölgun næst þegar ég fer... spennandi! Þau voru búin að standa sig afskaplega vel í hreiðurgerð og allt orðið voða fínt. Ekki laust við að klingt hafi í mér þegar ég skoðaði litlu sætu samfellurnar og gallana, bara of krúttlegt! Eins gott að það er vinkonubarn á leiðinni svo maður fái smá barnaútrás, verður snilld að hafa loksins lítið barn nálægt sér sem maður getur kjassað og knúsað :)
En hvað er annars að frétta af ykkur?

Ég fékk ömurlegan málshátt
09. apríl 2007 klukkan 13:04
Margir taka gröf sína með tönnunum, með því að offylla magann.
Svona málshætti ætti að banna á páskunum, virkilega niðurdrepandi að lesa þetta rétt áður en maður byrjar að háma páskaeggið í sig.
Ég tek þessu sem skilaboðum að ofan um að sumar ættu að hætta öllu súkkulaðiáti (samt sko ekki fyrr en eggið var búið) og snúa sér að skyrinu!

Samwell - What What...
07. apríl 2007 klukkan 11:29
Hey, ég verð að deila þessu myndbandi með ykkur. Ég er búin að grenja úr hlátri yfir þessu undanfarinn mánuð og get lofað ykkur að ef þið eruð eitthvað down þá hressir þetta ykkur við. Þvílíkir hæfileikar, frábært lag með stórkostlegum texta og myndbandið æðislegt.
Njótið vel!
Njótið vel!
Partytime
06. apríl 2007 klukkan 12:23
Ýmislegt búið að gerast undanfarna daga.
Á laugardagskvöldið var pizzukandarapartý hjá Snædísi. Eiginmaður hennar, ástríðukokkurinn Ragnar, grillaði ofan í okkur alveg hreint ótrúlega ljúffengar pizzur. Þemað var litagleði og vorum við því aðeins líflegri en venjulega. Afskaplega huggulegt kvöld. Mæli eindregið með að fólk kíki á síðuna hjá kokkinum og prófi uppskriftir þaðan. Ég bakaði allavegana pizzu á miðvikudagskvöldið og ákvað að prófa uppskriftina hans Ragga í stað þeirrar gömlu góðu sem ég hef notað í mörg ár. Pizzan varð auðvitað alveg frábær, enn betri en þær sem ég hef bakað hingað til. Næst er held ég málið að prófa að grilla pizzuna á gasgrillinu út í garði, það kom svaka gott eldsmiðjubragð af pizzunum þegar Raggi grillaði þær.
Á miðvikudagskvöldið var síðan party-time! Fyrst var förinni heitið í Ljótufatapartý hjá Ástu og Mikka. Við Hafdís, Sveinbjörn og Eva skelltum okkur í okkar ljótasta dress og svo í partý. Þetta er auðvitað snilldarþema. Ég tók að sjálfsögðu fullt af myndum en er ekki enn búin að skella þeim inn í tölvuna, þið fáið kannski að sjá einhverjar síðar. En mjög skemmtilegt partý með tópasstemningu í boði óléttu konunnar. Seinna um kvöldið var síðan skipt um partý en Elsa og Valtýr voru einmitt með partý sama kvöld. Við fjórmenningarnir skelltum okkur öll þangað í ljótu fötunum okkar, sem var afskaplega gaman. Sú ólétta kom sér síðan heim ásamt fyldarsveini sínum en við Eva skiptum yfir í eðlileg föt og héldum djamminu áfram. Mikið af skemmtilegu fólki til að ræða við og opin Tequila flaska á borðinu... Loks var skellt sér í bæinn, fórum fyrst á Celtic þar sem Ásgrímur og hans vinir voru að skralla. Þá voru nú sumar orðnar ansi hressar og skemmti mér ofboðslega vel. Í lokin röltum við yfir á Vegamót en sá staður var auðvitað pakkaður. Ég stoppaði nú ekki lengi þar enda erum við systkinin svo hagsýn að okkur finnst fáránlegt að taka tvo leigubíla á sama heimilisfangið sömu nóttina. Held við höfum skilað okkur heim upp úr fimm eftir ákaflega vel heppnað djamm. Takk fyrir kvöldið allir sem ég hitti!
Gærdagurinn var svo ekki alveg jafn skemmtilegur... en við því var svo sem alveg að búast. En mér var eiginlega alveg sama um þynnkuna því þetta var mjög skemmtilegt kvöld og mitt seinasta djamm í bili. Næstu vikurnar mun skólinn eiga hug minn allan enda brjálæði hvað ég þarf að afreka miklu. Djammarinn í mér, sem er reyndar búinn að vera afskaplega lélegur undanfarið, ætlar því í pásu fram til 12.maí en þá ætti öllu skóladóti að vera lokið.
Í gærkvöldi skelltum við Ásgrímur okkur svo á myndina The science of sleep í boði Græna ljóssins. Ég mæli með að fólk skrái sig í klúbbinn hjá Græna ljósinu því þeir bjóða manni sko reglulega í bíó. Þetta var mjög áhugaverð mynd, afskaplega súr en oft á tíðum mjög fyndin. Er pottþétt ekki mynd fyrir alla þar sem nokkrir löbbuðu út af henni. En ólíkt öllu sem ég hef séð og það er bara gaman.
Í dag hófst svo lærdómsmaraþonið að nýju en ég ætla samt að skella mér á Fyndnasta mann Íslands í Austurbæ í kvöld. Alltaf gott að hlæja hressilega.
Lærdómurinn kallar. Hafið það nú gott um páskana krúttin mín.