Carmen orðin hrein
29. nóvember 2006 klukkan 21:47
Loksins ber Carmen aftur nafn með rentu - orðin hrein og glansandi eftir nokkurra vikna brúngrátt tímabil. Carmen er vægast sagt mikið létt enda er hún dama sem vill koma vel fyrir hvert sem hún fer.
Menningarlega Agnes
27. nóvember 2006 klukkan 20:26
Ég er nú aldeilis búin að vera menningarleg undanfarna viku. Fór tvisvar sinnum í bíó og í bæði skiptin á íslenskar myndir - og ég sem fer nánast aldrei í bíó.
Börn: Við mamma skelltum okkur á Börn á fimmtudagskvöldið. Ég hef ætlað mér að sjá þessa mynd síðan sýningar hófust þannig að það var kominn tími til að skella sér. Þetta er einfaldlega sú allra besta íslenska mynd sem ég hef séð. Snilldarleikur, allir leikararnir sannfærðu mann algjörlega um sinn karakter. Frekar sjokkerandi og áhrifarík mynd, vakti upp smá hugsun og allt saman. Bara alveg ótrúlega góð mynd og ég mæli með að þeir sem hafa ekki ennþá farið skelli sér meðan hún er enn í sýningu.
Mýrin: Þar sem ég er litla barnið á heimilinu leyfði ég mömmu og pabba að bjóða mér á Mýrina í gær (enda mun betri valkostur en prófalestur). Sú mynd var mun betri en ég átti von á þó ég búist samt við að vera búin að gleyma henni eftir nokkrar vikur. Nokkuð góður leikur, stundum alltof hæg atriði og auðvitað einhver vandræðaleg móment en í heildina samt góð. Ég las nú bókina fyrir nokkrum árum en hún hefur algjörlega virkað sem afþreygingarbók fyrir mig því ég mundi bara ekkert eftir söguþræðinum.
Mér finnst allavegana ótrúlega mikil og góð þróun í íslenskri kvikmyndagerð að tvær myndir á sama ári séu góðar. Hingað til hefur mér nefnilega ekki fundist margar íslenskar myndir góðar, nema auðvitað klassískar eins og Stella í orlofi og Með allt á hreinu
Allir í bíó!

What´s up?
26. nóvember 2006 klukkan 02:03
Mest lítið að frétta af mér þessa dagana. Við Elsa héldum fyrirlestur á fimmtudaginn þannig að vikan er að mestu búin að fara í að undirbúa hann. Síðan er það bara lærdómur þessa helgina enda stórt skilaverkefni + tvö próf í einu fagi á mánudaginn. En ég er svo sem alveg til í rólega helgi eftir tvöfalda djammið síðustu helgi.
Í næstu viku eru það svo Rock Star tónleikarnir sem við Ellý ætlum að skella okkur á - verður pottþétt stuð. Síðan er Lay Low með útgáfutónleika á miðvikudaginn í Fríkirkjunni, hver vill koma með mér? Ásta ætlaði að tékka á vinnunni hjá sér, ég bíð spennt eftir því hvort hún komist ekki bara með mér. Annars eru allir velkomnir, mig bara langar rosalega og nenni ekki ein. Aðeins 1650 kr miðinn.
Er það bara ég eða flýgur tíminn áfram þessa önnina? Mér finnst eins og ég hafi byrjað í skólanum í síðustu viku en nei nei önnin er bara búin næsta fimmtudag. Eða réttara sagt mætingin er búin næsta fimmtudag en síðan er afar spennandi að sjá hvenær ég kemst í jólafrí. Ég þarf sem sagt að skila 5 verkefnum í desember þar sem seinasti skiladagur er 20.desember en ég stefni auðvitað á að vera ofur dugleg og komast í jólafrí fyrr. Enda þarf ég nú að skella í smákökur, kaupa jólagjafir og dúlla mér eitthvað fyrir jólin.
Fleira var það ekki í bili - endilega látið í ykkur heyra skinnin mín!

Myndir
21. nóvember 2006 klukkan 16:44
Ég setti inn myndir af hattapartýinu hjá sálfræðinni inn á cand.psych.myndasíðuna. Ef þið viljið njóta fegurðar hópsins getið þið klikkað hér eða á tengilinn hér til hliðar.
Annars er Pepsi Max að rústa Coke Light í könnuninni - get ekki sagt að ég sé hissa, enda miklu betri drykkur. En ég tek hana ekki alveg strax út því mér dettur ekkert nýtt í hug. Koma með hugmyndir takk.

Helgin
20. nóvember 2006 klukkan 20:09
Skemmtileg og viðburðarík helgi að baki.
Á föstudagskvöldið var partý tvö hjá sálfræðihópnum mínum. Hattaþemað heppnaðist vel og ég mætti með fjólubláan, loðinn nornahatt - virkilega smart. Partýið var ótrúlega vel heppnað. Elsa mætti með mystery flask - sem ég by the way bauðst til að smakka á - OJ! Einnig var hjálpartækjaumræða tekin, hárkollumátun og töfraatriði, gítarspil og falskur söngur, dans og svona mætti lengi upp telja. Ótrúlega vel heppnað kvöld og maður tók hressilega á því. Laugardagurinn var reyndar ekki alveg jafn góður, en það er aukaatriði. En enn og aftur sýndi það sig hvað þetta er ótrúlega skemmtilegur hópur, ég er bara strax farin að hlakka til næsta djamms. Hlín, takk kærlega fyrir okkur. Já og myndirnar koma inn við tækifæri.
Á laugardagskvöldið keyrði ég upp á Akranes þar sem Haddi vinur hennar Önnu Maríu var búinn að boða mig í surprise afmælispartý fyrir hana. Anna á sem sagt afmæli í byrjun desember og oftast eru allir í prófum á þessum tíma og því fer lítið fyrir afmælisveislum. Hann skipulagði því óvænta afmælisveislu og við vorum nokkrar vinkonur úr bænum mættar á staðinn. Anna hélt að hún væri að koma í matarboð til Hadda og andlitið gjörsamlega datt af henni þegar hún sá okkur. Ótrúlega vel heppnað. Haddi var síðan búinn að útbúa þvílíkar kræsingar og ég át í burtu þynnkuna. Ég verð samt að fá uppskrift af þessari eplaköku, come on ég sem borða ekki eplaköku hámaði hana í mig eins og ég fengi borgað fyrir það. Síðan drakk ég nokkra kokteila Önnu til samlætis og við skelltum okkur svo aðeins á Mörkina, sem er skemmtistaðurinn á Akranesi (sá eini). Þegar við ætluðum svo heim til Hadda, þar sem við ætluðum að sofa, þá var veðrið orðið brjálað og við sáum varla fram fyrir okkur. Við komumst þó heilu höldnu heim til hans og gistum nokkur þar. Sem sagt vel heppnað partý og Haddi og Nína fá mikið hrós fyrir að hafa haft fyrir þessu. Daginn eftir leit þetta nú ekki beint vel út fyrir heimferð, enda vitlaust veður. Ég var þó á jeppanum þar sem pabbi hafði heimtað að skilja hann eftir handa mér. Ég hangsaði því aðeins heima hjá Önnu, fengum okkur að borða og fórum í sturtu - samt í sitthvoru lagi sko. Ég kíkti síðan aðeins á hana Ömmu gömlu og brummaði svo heim. Keyrði nánast alla leiðina á 50 km/klst í hálku, roki og brjáluðum skafrenningi. En komst heil heim. Anna mín, takk kærlega fyrir gott kvöld, nótt og dag.
Eðlilega varð því lítið úr lærdómi þessa helgina og þarf ég því að taka vel á því þessa vikuna. Ýmislegt framundan og skuggalega lítið eftir af skólanum. En gott að taka svona góða félagslega helgi, maður er alveg endurnærður eftir þetta.
Heyri í ykkur síðar. Hafið það gott. Bless.

Partý partý - Gaman gaman
17. nóvember 2006 klukkan 21:26
Hver í ósköpunum stendur fyrir þessum helv... kulda úti? Ég hélt ég yrði úti í morgun á leiðinni frá bílastæðinu að Lögbergi, en ég hafði það af í þetta skiptið.
Foreldraeiningin er farin til Rómar í 19° hita og skilur okkur blessuð börnin eftir heima í þessu frosti. Hvers konar foreldrar eru þetta, maður spyr sig.
Partý í kvöld - get ekki beðið.
Verðandi sálfræðingar að skralla - getur sko ekki klikkað.
Hattaþema og alles - búin að finna hatt og verð geðveikt töff.
Ekki laust við að maður sé kominn með galsa - spurning um að læra bara með kokteil sér við hlið!
The end.

Hvað er að frétta?
14. nóvember 2006 klukkan 01:14
Síðasta vika fór mest megnis í slappleika, þreytu og leti þannig að afskaplega lítið varð úr lærdómi. Ég nýtti tímann þó í staðinn og var einstaklega félagsleg og hitti marga sem ég hef ekki séð lengi.
Byrjaði á því að á þriðjudagskvöldið var saumó hjá Ellý en í þessum hópi eru gömlu FB vinkonurnar og við hittumst sko alltof sjaldan. Allar komust nema ein og við áttum gott spjallkvöld auk þess sem við gæddum okkur á ótrúlega gómsætri daimtertu.
Á miðvikudagskvöldið var svo loksins sálfræðistelpuhittingur. Við BA-vinkonurnar hittumst á kaffihúsi og spjölluðum heilmikið og hlógum þrátt fyrir pirrandi sígarettureyk. Þarf varla að minnast á það að ég get varla beðið eftir reyklausum veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi. Einnig fannst okkur ótrúlega skrýtið hversu erfitt er að fá eitthvað nart á kaffihúsum í dag, en við fórum á tvö kaffihús og á hvorugu gátum við fengið neitt annað en rándýra drykki. En ótrúlega skemmtilegt kvöld. Næsta áskorun er að finna kvöld sem hentar fyrir djamm með þessum stelpum, spurning hvort það takist nokkuð fyrr en í jólafríinu.
Á fimmtudagskvöldið fór ég svo í afmæliskaffiboð til Hörpu og var það rosalega fínt. Spjallaði heilmikið við systurnar Hörpu og Svövu, já og svo auðvitað eitthvað við hina gestina líka. Svo át maður að sjálfsögðu á sig gat enda hellingur af girnilegum veitingum í boði - hún er svo myndarleg hún Harpa. Þegar ég fór svo heim var komið brjálað veður og Carmen hristist öll til alla leiðina heim.
Við Kolbrún gerðum svo tilraun til að hittast um helgina en tókst ekki þannig að helgin fór bara í rólegheit, videogláp og lærdóm.
En eftir þessa góðu félagslegu viku er ég næstum búin að hitta alla sem ég umgengst svona reglulega. Þarf að gera aðra tilraun með Kolbrúnu við fyrsta tækifæri og svo stefnum við Anna María á hitting í vikunni. Nokkuð góður árangur, þá get ég hunsað alla með góðri samvisku í lokatörninni í skólanum
Þessi vika á svo að fara í lærdóm og ekkert nema lærdóm - auðvitað fyrir utan So you think you can dance hitting hjá Hafdísi og Sveinbirni og date með Önnu Maríu - því á föstudaginn er komið að djammi númer tvö hjá sálfræðibekknum mínum. Verður bókað svaka stuð. Gott að hafa gulrót í enda vikunnar, hvetur mann til að vera duglegur.
Nóg komið af kjaftæði í bili.
Góðar stundir.

Spurningar
10. nóvember 2006 klukkan 20:01
Hún Hafdís var svo yndisleg að skora á mig að skella þessu inn á síðuna mína. Ég hafði fyrir því að svara þessu fyrir hana þannig að nú heimta ég góð viðbrögð fólk - fyllið þetta út í kommentunum takk!
1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefurðu?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Kossar
07. nóvember 2006 klukkan 15:18
You're an Expert Kisser |
![]() You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantity You've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks off And you're adaptable, giving each partner what they crave When it comes down to it, your kisses are truly unforgettable |
Hvað finnst ykkur, ætti ég að skella þessu inn í einkamálaauglýsinguna mína?
Tölfræði - frídagur - veðrið
05. nóvember 2006 klukkan 18:04
Nóvember mættur á svæðið og alveg nóg að gera. Merkilegt hvað tíminn flýgur áfram, áður en maður veit af verður önnin búin og jólin komin.
Síðastliðna vika fór öll í tölfræðiverkefni með tilheyrandi pirringi og hausverkjum. En ég skila sem sagt einu tölfræðiverkefni á eftir, á sko eftir að lesa það almennilega yfir, og svo öðru á þriðjudaginn. Mætti halda að sumir kennarar haldi að maður sé í einu fagi en ekki fimm. En eftir mikla tölfræðivinnu var ég gjörsamlega búin á því og opnaði ekki einu sinni bók í allan gærdag. Ég svaf bara út - í dag kallast það að sofa til rúmlega tíu að sofa út - spjallaði heilmikið við Ásgrím og eftir miklar vangaveltur varð niðurstaðan sú að hvorugt nenntum við að læra og ákváðum frekar að fara aðeins út að vesenast. Við kíktum á fatamarkað í Fellsmúla sem var afspyrnu lélegur en ákváðum svo að kominn væri tími á að við heiðruðum nýja stóra IKEA með nærveru okkar. Þar sem Ásgrímur er IKEA-kóngur með meiru þá var sko löngu kominn tími til að hann tékkaði á nýju búðinni. Okkur leist bara nokkuð vel á en vá hvað hún er stór. Við blönku námsmennirnir keyptum samt ekkert en ég fann samt hillusamstæðu sem mér leist rosalega vel á, ætla aðeins að íhuga hana betur. Restin af deginum fór svo í enn meiri leti og kvöldið í að glápa á Ice Age 2. Virkilega fínn dagur og sá fyrsti í ansi langan tíma þar sem ég lærði akkúrat ekki neitt og gerði bara það sem mér sýndist. En í staðinn þarf ég að gera ýmislegt í dag en það var vel þess virði að fá smá frí.
En svo er það helvítis veðrið. Frá því ég var krakki hef ég aldrei getað sofið í hávaðaroki og það hefur sko ekkert breyst. Ég var sem sagt vöknuð fyrir klukkan sex í morgun og náði varla neitt að sofna aftur. Veit ekki alveg hvað er málið en þegar ég heyri í svona vondu veðri þá sef ég einfaldlega ekki. En jákvæði punkturinn við þetta er að ég byrjaði þá bara snemma að læra í morgun.
Eitt enn, ég er nú ekki beint þekkt fyrir að vera pen en brussuskapur minn á sér ekki mikil takmörk. Á föstudagsmorguninn var ég komin niður í skóla um það leyti sem tíminn átti að byrja og þurfti að leggja ansi langt frá Lögbergi þar sem tíminn var haldinn. Brussuskapur minnkar ekki beinlínis þegar maður er að flýta sér en á einhvern snilldarlegan hátt tókst mér að skella bílhurðinni á kálfann á mér. Vá hvað þetta var sárt, ég var auðvitað viss um að sokkabuxurnar hefðu rifnað og blóðið flæddi úr fætinum á mér en nei þetta var ekki svo slæmt. Ég haltraði síðan þessa fáránlegu löngu leið frá bílastæðinu að Lögbergi og náði í tímann. Núna er síðan að myndast þessi líka hlussustóri marblettur á kálfanum á mér, hann stefnir í að verða ansi hreint fallegur. Ótrúlegt hvernig maður meiðir sig oft mest sjálfur, skiljið þið mig?