Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Agnes Björg Tryggvadóttir
  • Netfang: agnest@hi.is
  • Staður: Reykjavík
  • Símanúmer: 6950728
  • Atvinna: Sálfræðinemi

Auglýsing

Leit

Tónlist

31. október 2006 klukkan 15:52
Er það bara ég eða er óvenjumikið af spennandi nýrri íslenskri tónlist þessa dagana? Mér finnst eitthvað svo mikið af nýjum áhugaverðum tónlistarmönnum að koma fram. Ekki það að ég hafi mikinn tíma í tónlistarpælingar þessa dagana en þegar ég slappa af þá verður lágstemmd íslensk tónlist oft fyrir valinu. Ég verð sérstaklega að nefna að diskurinn hans Togga hefur varla farið úr spilaranum síðan ég keypti hann. Síðan lenti ég óvænt á tónleikum með Fabúlu um daginn sem voru ótrúlegir, þannig að ég ætla að tékka á þeim diski við fyrsta tækifæri. Fabúla er reyndar ekkert ný í bransanum en þetta er samt í fyrsta skipti sem hún vekur virkilega eftirtekt mína. Eftir tónlistarsamræður við Ástu um daginn fór ég síðan að hlusta á Lay Low sem ég er að fíla í botn, verð að eignast diskinn hennar við tækifæri. Svo er ég aðeins byrjuð að tékka á Pétri Ben því ég hafði heyrt svo mikið gott um hann og líst bara nokkuð vel á. Síðan finnst mér Emilíana Torrini alltaf góð og bíð spennt eftir nýju efni frá henni og Ampop standa fyrir sínu - ég á reyndar eftir að taka nýja diskinn almennilega í hlustun. Þannig að ég vil íslenska tónlist í jólagjöf, blankir námsmenn hafa auðvitað ekki efni á að kaupa alla diska sem þeim langar í. En þessar My Space síður eru gjörsamlega að bjarga manni, maður fær allavegana að smakka aðeins á tónlistinni og athuga hvort þetta sé eitthvað fyrir sig - mjög sniðugt.

Í framhaldi af þessu, eru einhverjir fleiri í svipuðum geira sem þið viljið benda mér á?

Eitt og annað

28. október 2006 klukkan 16:50
Er ekki löngu kominn tími á að skipta um könnun?
Niðurstöður þeirrar síðustu voru að One Tree Hill hefur rétt svo vinninginn yfir The OC með 33% atkvæða á móti 25%. Bæði betra var svar 17% en heil 25% sögðust horfa á hvorugt, shocking!
Ég setti enn eina ófrumlega könnun inn, það er nú jafnvel spurning um að hætta þessu könnunadæmi.

Á fimmtudagskvöldið fór ég á kaffihús með Ástu enda alltof langt síðan við höfðum spjallað almennilega. Við enduðum á Rosenberg á tónleikum með Fabúlu og vá hvað þetta var flott. Þvílík rödd sem manneskjan er með. Ótrúlega skemmtilegt kvöld, almennilegt spjall með gullfallegri live tónlist í kaupbæti. Við Ásta tókum einmitt mikla tónlistarumræðu í kjölfarið og ég er komin með fullt af nýjum listamönnum til að tékka á, bara gaman. Núna þarf ég bara að finna tímann til þess, en það er hins vegar annað mál.

Núna er ég bara á fullu í fyrirlestragerð, gengur bara alveg hreint ágætlega. Vonandi að ég komist langt með þetta í dag svo ég geti prófað að flytja hann á morgun, bætt hann og tékkað á tímanum sem hann tekur. Annars er ég með verkefni sem ég þarf að fínpússa fyrir mánudaginn og svo er líka próf á mánudaginn sem væri gott að geta aðeins lesið fyrir. En það verður bara að koma í ljós, fyrirlesturinn gengur fyrir enda gildir hann heil 35% af einkunn í þessu námskeiði.

Annars er ég bara hress!


Bla...

25. október 2006 klukkan 21:54
Blessuð
Ég hef nú mest lítið að segja þessa dagana, brjálað að gera í skólanum og á mánudaginn held ég 90 mínútna fyrirlestur. Hugsa að allur minn tími fari í það næstu dagana. En þetta er frekar fjölbreytt efni sem ég er með, á 90 mínútum á ég að fjalla um mat á jaðarpersónuleikaröskun, mat á röskunum hjá eldra fólki og enda svo á sameiginlegum flötum atferlisstefnu og taugasálfræði. Spennandi, ekki satt?

Annars var ég að hugsa um að fara að skipta um könnun en ég er gjörsamlega tóm í kollinum. Koma með hugmyndir takk, er að reyna að halda smá lífi í þessari síðu.

Annars er ágætt að hafa blogg til að láta svona aðeins vita af sér því ég hitti vinina ekkert sérstaklega oft. Eins gott að krakkarnir í skólanum eru svona skemmtilegir því annars væri ég að rotna félagslega. Ég hef nú reyndar verið dugleg að kíkja til Hafdísar og Sveinbjörns því við Hafdís erum í símaátaki og reyna að spjalla frekar reglulega face-to-face og draga úr símavændinu. Svo er Ásta skvís á dagskránni í þessari viku þar sem ég hef bara ekki hitt hana heillengi, enda er hún alltaf svo agalega busy stelpan.

Þannig að ég spyr bara, hvað er annars að frétta af ykkur?

Djammerídjamm

22. október 2006 klukkan 19:07
Loksins kom að því, mín datt í það!

Á föstudagskvöldið var langþráð djamm okkar cand.psych.nema og vá hvað það var gaman. Hún Snædís var svo hugguleg að halda partý og mætingin bara mjög góð. Ótrúlega gaman að hitta þessa krakka í öðru umhverfi en í skólanum og hópurinn passar þvílíkt vel saman. Það var drukkið, spjallað, hlegið, sungið og dansað - allt sem almennilegt partý þarf að hafa. Við skemmtum okkur svo vel að við fórum ekki einu sinni í bæinn og það kalla ég vel heppnað partý. Einn hápunktur kvöldsins hlýtur að vera þegar gestgjafinn sjálfur sprakk svona svakalega úr hlátri með munninn fullan af skemmtivökva að það frussaðist út um allt! Sumir sýndu góða einkadansaratakta og aðrir leyfðu sönghæfileikunum að blómstra. Við Elsa sýndum og sönnuðum að við erum vanhæfar um að taka mynd af okkur sem sýnir hvað við erum svakalega sætar, hlýtur að vera eitthvað að myndavélinni minni! Sem sagt í heildina alveg hreint frábært kvöld og alveg nauðsynlegt að fá svona góða útrás. Takk fyrir kvöldið krakkar mínir! Hérna getið þið skoðað hvað þetta er fríður hópur.

Image Hosting by PictureTrail.com
Hérna er ein af fjölmörgum tilraunum okkar Elsu til að myndast vel!

Á laugardaginn var ég alveg ótrúlega hress miðað við aðstæður, var bara nokkuð góð eftir einn hamborgara og eyddi síðan deginum í hálf-misheppnuðu ættingjaboði. Sem sagt enginn lærdómur og ég er að reyna að sparka mér aftur í gírinn í dag.

Áhugi

19. október 2006 klukkan 22:21
Í dag tók ég áhugasviðskönnun sem snýr að starfsáhuga. Niðurstaðan mín var SEC en til gamans má nefna að stafirnir fyrir klínískan sálfræðing eru SIA. Ég er því nokkuð langt frá því miðað við þetta. En niðurstaðan mín segir að  minn helsti áhugi sé á félagssviðinu, það er að ég vil vinna með fólk en ekki hluti, hjálpa öðrum, vera í tengslum við fólk og hef skilning á þörfum annarra og huga að velferð þeirra. Næsti þátturinn minn var athafnasvið, sem tengist frumkvöðlum og leiðtogum og vera góðir í að stjórna öðrum (þarna kemur stjórnsemin kannski inn, hmmm), þörf fyrir að hafa áhrif, get verið yfirgangssöm og sæki í áhrifastöður. Þriðji þátturinn hjá mér er svo skipulagssvið (SHOCKING!), sem þýðir að mér hentar vel að fylgja reglum, er nákvæm, raunsæ og samviskusöm, stefni að markmiðum og ekki frumleg. Skondið samt að athafnaþátturinn tengist stjórnunarstöðum en skipulagsþátturinn að vinna undir stjórn annarra - en ég var hærri athafnaþættinum, frekjan ég!

Fannst frekar áhugavert að skoða þetta. Ég spurði einmitt konuna sem var að kenna okkur hvort ég yrði vonlaus sem sálfræðingur en hún sagði að þetta benti til að mér fyndist aðferðafræði leiðinleg og myndi ekki vinna við rannsóknir en passað ágætlega inn í klínískt starf. Spurning hvort niðurstaðan sé að vísa mér veginn inn í vinnu- og skipulagssálfræðina. Störfin sem passa við stafina sem ég fékk út voru meðal annars barþjónn, öryggisvörður, kennari og alls konar stjórnunarstörf. Spurning um að opna bar, stjórna honum sjálf og vera barþjónninn og beita svo klíníska nefinu yfir barborðið og hjálpa fólki sem kemur til að drekkja sorgum sínum. Allavegana hugmynd!

Hvað segið þið annars, kemur þessi niðurstaða á óvart?

Lúkkið

16. október 2006 klukkan 00:29
Er fólk að fíla nýja útlitið?
Eða var það gamla kannski betra?

Það var fínt að dunda sér við þetta í gær meðan ég var að "melta" rökgreininguna!

Örvhentir

14. október 2006 klukkan 15:24
Ja hérna hér....
Niðurstöður ofurskemmtilegu könnunarinnar: Ertu örvhent/ur? eru komnar í hús. Af þeim sem kusu eru 72% rétthentir en 28% örvhentir. Ég verð að viðurkenna að þetta eru miklu fleiri örvhentir en ég átti von á. Ég verð greinilega að fara að fylgjast betur með hverjir vina minna séu örvhentir!

Ný gríðarlega skemmtileg könnun komin inn og já ég er gjörsamlega hugmyndasnauð.

Hef ekkert að segja ykkur - stór rökgreiningardagur framundan.

Adios!

Letidagur

12. október 2006 klukkan 01:39
Blessuð
Þessa dagana er allt að toppa í skólanum. Í næstu viku á ég t.d. að skila þremur verkefnum og taka eitt próf. Þetta álag mun svo að mestu haldast langt fram í desember - svaka stuð.

Og hvernig tek ég á þessu? Jú ég eyddi deginum í tveggja manna saumaklúbb með stelpunni sem ég átti að vera að vinna verkefni með. Ég held í alvörunni að við höfum slegið met. Hittumst sem sagt kl.9 með góðar fyrirætlanir um að rúlla upp þessu verkefni og ég kom heim þegar klukkan var að verða 17:30 og þá höfðum við lítið annað gert en að ná í nokkrar heimildir og banka upp á hjá einum kennaranum og fá lánaða bók. Reyndar mættum við í málstofu í hádeginu, en that´s it! Alveg hreint brilliant dagur. Reyndar varð smá árangur hjá okkur, við fórum að plana partý fyrir bekkinn okkar. Það er sko kominn tími á að hrista hópinn saman með smá fylleríi. Verður pottþétt geðveikt gaman - er líka kominn tími á smá útrás hjá mér.

Annars er bara fínt að frétta. Lífið snýst bara um lærdóm, svefn, stöku sjónvarpsgláp og leti og svo auðvitað maraþonsímtöl við Hafdísi (verðum hreinlega að gera eitthvað í þessu Hafdís mín!)

Hafið það nú gott krúttin mín!

Íbyggni

09. október 2006 klukkan 19:45
Ji minn eini...
Ég var algjörlega búin að týna íbyggninni.

Sálfræðistelpur: Vissuð þið að það er ekki hægt að skilja neitt í sálfræði nema íbyggnin sé á hreinu? Hvernig komst ég þá í gegnum BA-námið, ég virðist alltaf týna þessu hugtaki gjörsamlega! Niðurstaða tímans hjá Magnúsi okkar í dag er sem sagt að ég skil ekkert í sálfræði... úps!

Spurning um að hætta í náminu og finna sér grein sem ég skil kannski eitthvað í.

Afmæli og sitthvað fleira

06. október 2006 klukkan 23:00
Stórir dagar um þessar mundir á mínu heimili.
Í dag á mín elskulega móðir afmæli - til lukku með það.
Einnig eiga foreldrar mínir 27 ára brúðkaupsafmæli í dag - húrra fyrir því.
Á morgun á svo elskulegur faðir minn afmæli - til hamingju með það.
Ég held að við systkinin höfum sjaldan verið eins hugmyndasnauð þegar kemur að gjöfum en ég dreif mig í leiðangur í gærkvöldi og reddaði svo rest í dag. Reyndar kostaði þessi leiðangur minn í gærkvöldi það að ég keypti mér snyrtidót og skó - borgar sig greinilega ekki að fara ein í Smáralindina að kvöldi til, alltof dýrt.

Annars er mest lítið að frétta af mér þessa dagana. Lífið snýst um lærdóm en ég er nú samt búin að hitta flesta eitthvað undanfarið. Er svona að reyna að loka mig ekki alveg af. Annars líkar mér afskaplega vel að vera í svona litlum bekk. Ég er t.d. búin að redda mér félaga í öll tveggja manna verkefni vetrarins - eruð þið ekki stolt af mér? Eftir önnina verð ég því búin að prófa að vinna með fjórum manneskjum úr bekknum sem er meira en ég gerði öll þrjú árin í BA-náminu.

Helgin fer í almennan afmælisfagnað og svo ætla ég að fá útrás fyrir litla félagströllið í mér í kvöld og kíkja aðeins til Beggu í smá partý. Það verður þó alsaklaust því á morgun er stefnan sett á að athuga greind Hafdísar og Ásgríms. Ég er sem sagt með tösku sem nota þarf í greindarpróf yfir helgina og þarf að prófa þrjár manneskjur. Ásta er svo þriðji sjálfboðaliðinn og ég ætla að prófa hana á sunnudaginn. Þetta verður örugglega bara gaman enda bráðskarpt fólk.

Bið að heilsa í bili...


03. október 2006 klukkan 15:07
Mér leiðist..... Fýldur

Þið megið giska í hvaða tíma ég er!

Ásta er æði

01. október 2006 klukkan 15:57
Vil benda áhugasömum lesendum á nýjan tengil hér til hliðar sem merktur er Ásta. Þarna er hún Ásta sálfræðiskvísa og útlandafari með meiru með myndablogg frá útlandaævintýri sínu. Endilega fylgist með - þetta er örugglega besta síðan á öllu netinu.

Ánægð Ásta?

Tilvitnun vikunnar

Education is what survives when what has been learned has been forgotten.
- B. F. Skinner -