Ojojoj...
28. september 2006 klukkan 17:56
Eigum við eitthvað að ræða hvað þetta var ógeðslegt? Í gær var ég í sakleysi mínu inn í herbergi að ræða heimsmálin við Ásgrím þegar ég tek eftir dökkri klessu í loftinu upp við vegginn sem rúmið stendur við. Mér sýndist svona að þessi klessa væri með lappir en sá það ekki nógu vel. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þarna sat þessi hlussu-könguló í makindum sínum í loftinu að glápa á okkur. Ég með mína köngulóafælni fékk alveg aukinn hjartslátt og mikla vanlíðan að vita af þessu kvikindi og strax farin að ímynda mér að hún hafi verið þarna lengi og horft á mig sofa á nóttinni og látið sig síga niður og potað í mig! Allavegana fékk Ásgrímur að sýna karlmennskuímynd sína og fjarlægja kvikindið - afar hugrakkur. En ég skal segja ykkur það að þetta var stór könguló með tvískiptan feitan búk og langar, þykkar, loðnar, röndóttar lappir. En ég hafði mig svo ekki í að drepa ógeðið heldur sleppti henni lausri í garðinum eins langt frá herberginu mínu og hægt var. Núna er ég ekkert á því að opna gluggana hérna aftur því ég er nokkuð viss um að hún sé að safna liði út í garði og komi til baka með liðsauka til að hefna sín. Þetta bíður sko upp á miklar martraðir hjá svona köngulóa-fælinni manneskju eins og mér. Ég óttast líka að hún hafi kannski náð að fjölga sér hérna inni og eftir nokkra daga fyllist herbergið af reiðum afkvæmum, kannski binda þau mig inn í köngulóavef meðan ég sef - hvað veit maður?
Ég reyni samt að dreifa huganum með lærdómi inn í loftlausa herberginu mínu en það er ekki laust við að þessi reynsla hafi markað djúp spor í sálu mína.
Ég fékk einmitt hroll við að skrifa þetta. Anda inn um nefið og út um munninn......

...
27. september 2006 klukkan 23:06
Er eðlilegt að verða illt í augunum eftir mikinn lestur? Ég sver að það er vont að hafa augun opin en samt óþægilegt að loka þeim... hjálp!
Í skólanum
26. september 2006 klukkan 14:27
Ah... er í tölfræðitíma og vá hvað það er erfitt að halda sér vakandi hjá þessum kennara - sálfræðinemar vita um hvað ég er að tala! Fyrr má nú vera að taka löng og óskiljanleg dæmi. Eyðir svona ca. 3 tímum í efni sem hann gæti rumpað af á klukkutíma og skilið eftir jafn mikinn skilning í kollinum á okkur. Nettur pirringur í manni og enn um 2 tímar eftir.
Annars er ég að fara til tannsa eftir skóla og hef ekki efni á því - ég tek hlutverk fátæka námsmannsins mjög alvarlega. Sem betur fer á ég VISA-kort.
Hitti Ástu, Hafdísi og Sveinbjörn í spjall á laugardagskvöldið, alltaf gott að hitta "stelpurnar" í almennilegt spjall, alltaf nóg til að ræða. Gaman gaman, gera þetta oftar!
Í kvöld er stefnan sett á Akranes. Mamma er að fara í saumaklúbb þannig að ég ætla að fara með henni og heimsækja hana Önnu Maríu. Er sko alltof langt síðan ég sá hana, við eigum inni fleiri klukkutíma spjall.
Annars er ekkert að frétta, bara skólinn kominn á fullt og ég geri lítið annað en að læra. Flest fögin eru samt sem betur fer tiltölulega áhugaverð. Svo styttist í að mig vanti sjálfboðaliða í greindarpróf og svo í alls konar önnur próf þegar líður á önnina - megið eiga von á símtali frá mér þegar ég fer að leita að fólki í þetta!
Jæja, ætla að reyna að einbeita mér að kennaranum - heyrumst!

Niðurstöður
22. september 2006 klukkan 16:22
Jæja, þá er kosningu um nafn brummans formlega lokið. Þetta endaði í jafntefli milli Carmen og Carlos, bæði nöfnin fengu 15 atkvæði eða 39% hvort. Þar sem ég upplifi kaggann miklu meira sem stelpu eða strák þá tek ég afstöðu milli nafnanna og tilkynnist hér með að nýji brumminn minn heitir.......
Carmen
Takk kærlega fyrir þátttökuna öll saman.
Já og hugsið fallega til mín - er á leið í myndbandsupptöku sem meðferðaraðili og svo sem sjúklingur.

Hvað skal brumminn heita?
21. september 2006 klukkan 16:31
Ef svo ólíklega vill til að einhverjir eigi eftir að kjósa, þá hafið þið ca. sólarhring til þess. Það nafn sem hefur flest atkvæði á þessum tíma á morgun vinnur. Formleg skírnarathöfn fer svo fram um helgina. Eftir það verður aðeins vísað til bílsins með réttu nafni....
P.S. Annars eru fleiri búnir að kjósa heldur en skoða yfirleitt síðuna þannig að kannski er eitthvað svindl í gangi...

Helgin
19. september 2006 klukkan 20:59
Nokkuð skemmtileg helgi að baki.
Á föstudagskvöldið fór ég alein og hugrökk í Sumarhöllina miklu* þar sem 2.árs Kandarar (cand.psych.nemar) ætluðu að bjóða okkur 1.árið velkomin. Ég hélt ég væri passlega sein þannig að fólk yrði mætt en þá voru aðeins komnir krakkar af öðru ári og 2 af fyrsta ári, nett vandræðalegt til að byrja með. Svo var bara rosalega góð mæting og maður kynntist þessum krökkum aðeins. Eldri nemarnir hræddu okkur svona hæfilega mikið með álaginu sem fylgdi náminu en það var bara hressandi. Fínt að hitta líka krakkana sem eru með mér í bekk í öðru umhverfi en að læra. Ég var reyndar bara stillt og var edrú og á bíl þar sem ég var búin að plana mikinn lærdóm á laugardeginum. Fór svo bara heim um eitt-leytið en þá voru hvort eð er mjög margir farnir að týnast í burtu.
*Sumarhöllin er sem sagt hús sem cand.psych.nemar í sálfræði hafa sem lærdómsaðstöðu. Þetta er sem sagt kofi með nokkrum herbergjum með hrörlegum húsgögnum og ansi hljóðbært. En við eigum að vera þakklát fyrir þessa aðstöðu þar sem við þykjum heppin að hafa svona pláss (já svona er þetta í HÍ) en ég á reyndar eftir að prófa almennilega að læra þarna.
Á laugardaginn hafði verið planað mikið og gott stelpudjamm hjá saumaklúbbnum sem fór algjörlega út um þúfur. En við gerðum auðvitað gott úr þessu. Ellý, sem er komin til landsins, Harpa, Kolbrún Ýr og Hrund kíktu til mín í smá drykkju og spjall og sýndum við mikla hæfni í kokteilablöndun og -drykkju. Síðan fórum við niður í bæ í partý til Ástu Rósar og Halla, þar máttu þröngt sáttir sitja en var samt fínt þar til Hrund fékk kattarofnæmi og við stungum af. Þegar komið var í bæinn ákvað ég að vera frumleg og fara ekki á Hressó eins og er alltaf gert þegar maður fer í bæinn og fór frekar með Kolbrúnu á ´90 kvöld á 11-unni. VÁ hvað það var gaman. Alveg hreint er þetta yndisleg tónlist og ég gjörsamlega missti mig á dansgólfinu - Kolbrún getur vitnað um svakalega danstakta af minni hálfu. Þegar við vorum orðnar sveittar og ógeðslegar og hárgreiðslan gjörsamlega hrunin niður þá röltum við í pizzasneið og svo var haldið heim á leið. Ótrúlega skemmtilegt kvöld - takk fyrir það stelpur mínar. Má einmitt nefna að ég sé í mesta lagi fram á að hafa tíma í 1-2 djömm fram að jólum þannig að það skipti máli að þetta heppnaðist vel.
Á sunnudaginn vaknaði ég eiturhress fyrir utan það að hálsinn á mér var gjörsamlega stífur. Veit ekki hvort danstaktarnir hafi verið svona svakalegir hjá mér eða ég sofið e-ð vitlaust en allavegana er ég ennþá að drepast í hálsinum og háma í mig íbúfen - frekar spes eftirköst af djammi.
Ég er svo að stefna að því að skíra bílinn um helgina, sjáum hvert þessi æsispennandi kosning verður komin þá - reyndar hljóta allir sem lesa þetta að vera búnir að kjósa!
Þá er pásan búin - til hamingju ef þið nenntuð að lesa þetta allt. En þar sem ég er afskaplega mikið lokuð inn í herbergi að læra þessa dagana þá mættuð þið alveg segja mér hvað er að frétta af ykkur!
Verið þið sæl.

Ekkert
14. september 2006 klukkan 01:10
- Ég hef akkúrat ekkert að segja þessa dagana annað en: Læri læri tækifæri!!!
- Jú, kommentið!
- Eitt enn: Gríðarleg spenna er komin í kosninguna hér til hliðar, verður þitt atkvæði úrslitaatkvæðið?
Skólinn
09. september 2006 klukkan 18:03
Núna er fyrsta heila vikan af skólanum búin og ég búin að sitja öll fögin mín. Ég er búin að fá marga kvíðahnúta í magann þessa vikuna og upplifað nokkuð stress. Mér líst sem sagt bara nokkuð vel á þetta en samt er þetta svakalega ólíkt BA-náminu. Margt sem ég þarf að gera sem ég á eftir að eiga erfitt með - en hef mjög gott af. Ég fer í engin lokapróf þessa önnina en í staðinn er þvílík verkefnavinna og hellingur af smáprófum. Þannig að öll önnin verður rosa keyrsla. Það þýðir líka ekkert að mæta ólesin í tíma þar sem allir tímar eru nokkurs konar umræðutímar og það er ætlast til að maður tjái sig. Einnig er skyldumæting í alla tíma sem er nokkuð sem ég hef ekki upplifað lengi. Mér sýnist við vera í kringum 20 í flestum fögunum sem eru mikil viðbrigði frá BA-náminu þar sem maður var oft í 80 manna fyrirlestrum og meira. Ég á þá væntanlega eftir að kynnast þessu fólki, ég kannast sko við nokkur andlit þarna en enginn sem ég beint þekki. Svo er eitthvað af verkefnum þar sem við eigum að vera tvö saman þannig að ég verð að drífa mig í að kynnast einhverjum klárum til að vinna með. Mín spá er að eftir 3 mánuði verði ég annað hvort orðin taugahrúga eða að sjálfsöryggi mitt hafi aukist til muna - vonandi það síðarnefnda.
Ég hef eiginlega eytt allri vikunni í að reyna að komast í lærdómsgír en gengið mjög hægt. Byrjaði loksins að læra af einhverri alvöru í gær. Ég fann svo strax fyrir því í gærkvöldi að vera komin í annað nám þegar sálfræðiskvísurnar ákváðu að hittast og fá sér í glas. Ég mætti sem sagt edrú og á bíl og var þannig allt kvöldið því ég þarf að læra svo ógeðslega mikið fyrir mánudaginn, ef ég hefði nú bara drullast til að byrja að læra fyrr þá hefði ég getað skrallað með þeim. En við ætlum að finna okkur annað kvöld fyrir almennilegt sálfræðiskrall og þá bæti ég upp fyrir edrúmennsku mína.
Helgin er sem sagt bara plönuð í lærdóm. Þarf að komast yfir um 100 bls og gera eitt skilaverkefni. Ég ætla samt að gefa mér tíma í að hitta hana Ástu mína sem er loksins komin heim úr langri útlandareisu. Hlakka til að sjá hana í fyrsta skiptið frá því í janúar, hún verður sko knúsuð og kreist.
Endilega takið þátt í könnuninni hér til hliðar - þetta er stór ákvörðun um líf mitt þannig að ég vil endilega fá ykkar skoðun á þessu!
Jæja pásan er búin, ætla að hella mér í rökgreininguna. Heyri í ykkur síðar!

Myndir
03. september 2006 klukkan 21:58
Svona er ég hlýðin. Ég bjó mér til nýtt myndasvæði og skellti inn vel völdum myndum frá Gay-Pride. Ýtið bara á tengilinn hér til hiðar undir Myndir. Ég setti reyndar lykilorð á þetta svæði, sendið mér bara póst á agnest@hi.is til að fá lykilorðið eða biðjið um það á msn. Verð svo vonandi duglegri að skella inn myndum þarna í framtíðinni.
Sunna, ég vil fá hrós fyrir skjót viðbrögð!

Halló krakkar
02. september 2006 klukkan 00:39
Þá er ég formlega byrjuð í cand.psych.námi í sálfræði og orðin virðulegur framhaldsnemi. Ég mætti á fundi á miðvikudaginn sem skýrðu svona ýmislegt og sat svo námskeið allan fimmtudaginn til að vera nú sem best undirbúin fyrir veturinn. Formleg kennsla byrjaði svo í dag og ég mætti í einn tíma, Starf sálfræðings. Leist bara mjög vel á en ég ætla sko ekki að fullyrða neitt um þetta nám fyrr en eftir fyrstu vikuna því ég er nokkuð viss um að þetta fag sé það skemmtilegasta og jafnvel það léttasta (fyrir utan kvíðahnútinn varðandi myndbandsupptökur af meðferðarviðtölum eftir nokkrar vikur). Það var frekar skrýtið að sitja í tíma með 16 öðrum, er vanari að vera í 100 manna tímum. En í flestum fögunum mínum eru skráðir 20-23 nemendur, við erum sem sagt 15 í þessu námi sem ég er í en svo eru nokkrir mastersnemar sem taka námskeið með okkur.
Ég dreif mig svo í bóksöluna eftir tíma og verslaði herlegheitinn fyrir þessa önn og kostuðu þau 41.000 krónur, hvorki meira né minna. Svo er aldrei að vita nema einhver hefti og frekari kostnaður bætist við. Áhugavert að benda á að bókalánið sem ég fæ frá LÍN nemur um 22.000 krónum á önn.
Annað mál á dagskrá er nafn á litla, rauða, sæta brummann minn. Ég setti inn nýja könnun hér til hliðar til að fá ykkar álit. Þetta eru svona nokkur nöfn sem koma til greina, ég hallast svona til skiptis að þeim þannig að ég þarf smá aðstoð. Mér finnst sko eiginlega vera kominn tími til að skýra litla krúttið. Endilega kjósið!
Annars nýtti ég þessa viku nokkuð vel í alls konar hluti sem ég hef ekki gefið mér tíma í fyrr. Ég tók til dæmis almennilega til og þreif inni hjá mér, var sko kominn tími til. Ég lét líka framkalla rúmlega 300 myndir fyrir mig, gerði það sem sagt seinast í janúar, og er búin að raða myndunum inn í albúm og skrifa við þær allar - og það er sko hellings vinna. En ég er svo gamaldags að ég vil endilega hafa myndir í albúmum, finnst bara svo skemmtilegt að skoða myndir þannig og lesa texta við. Á miðvikudaginn var ég svo svakalega myndarleg og skellti í tvær kökur og hélt saumaklúbb um kvöldið, alltof langt síðan ég hef séð þessar stelpur og höfðum við um nóg að ræða. Gaman að því að við plönuðum loksins stelpufyllerískvöld í september þegar Ellý verður á landinu, en við höfum sko ætlað okkur að djamma saman allt þetta ár og ekkert gengið.
Það er greinilegt að ég skrifa alltof sjaldan þar sem ég skrifa alltaf svo langt loksins þegar ég skrifa. Vonandi að þið nennið að lesa þetta. Annars held ég að bloggin verði virkari hjá okkur flestum í vetur þegar skólinn er kominn í gang, er eins og bloggheimurinn leggist í dvala á sumrin. Maður verður nú líka að fá slatta af kommentum til að maður nenni þessu....
Hey eitt í viðbót. Helgi að ganga í garð og ég hef bara ekkert planað. Hélt sko að ég yrði byrjuð að læra á fullu en ég er bara ekki komin með neinar kennsluáætlanir og veit því ekki einu sinni hvað ég ætti að byrja að læra. Lærdómur hefst því líklega ekki fyrr en eftir helgi. Ég væri því endilega til í eitthvað skemmtilegt þannig að hóið í mig ef eitthvað er að gerast, takk!
Fleira verður það ekki í bili. Hafið það nú gott og vonandi sé ég ykkur sem flest bráðlega!