Próf á morgun!
Vil líka minna fólk á að kjósa í könnuninni, gaman að sjá hversu margir hyggjast mæta í partý!
Þar sem dagurinn í gær klúðraðist lærdómslega vegna lítils svefns og vinnuvesens þá tók ég daginn í dag með trompi og er búin að lesa stanslaust frá því hálf níu í morgun, bara með matarpásum og einu ótrúlega stuttu símtali við Hafdísi (svona miðað við okkur tvær, venjulegt lágmark er klukkutími). En ég á samt slatta vinnu eftir þannig að ég býst við að ég lesi soldið fram eftir kvöldi. Svo bara vakna í fyrramálið og lesa og svo er prófið loksins kl.13:30. Allir að hugsa vel til mín þá og senda mér góðar og gáfulegar skynjunarsálfræðihugsanir (ef þið eigið slíkar). Klukkan 16:30 á morgun verð ég búin með mitt síðasta próf í grunnnáminu, sem mér finnst sko ekki leiðinlegt.
Ætlaði bara aðeins að láta vita af mér, verð að halda áfram!
Ég blogga... já!
Niðurstöðurnar voru annars þær að 65% fannst að ég ætti að blogga því ég væri svo skemmtileg - takk fyrir það
og 35% fannst ég ætti að blogga ef ég hefði eitthvað að segja. Þátttakendur voru því einróma í því áliti sínu að ég ætti að blogga, þannig að ég held áfram með síðuna - í bili að minnsta kosti. Spurning samt hvort ég nenni þessu þegar ég er ekki lengur að læra á fullu, þetta er svo góð afsökun til að líta upp frá bókunum. Af lærdómi er það annars að frétta, eftir mikinn lestur seinustu daga, að ég er á áætlun. Þannig að ég held planinu bara áfram og stefni á að brillera í prófinu á laugardaginn.
Ég setti svo inn nýja könnun, endilega tjáið ykkur!
How will I die?
|
Jáhá... það er aldeilis!
Lćrdómspása
Seinnipartinn á laugardaginn ákvað ég að skella mér bara upp í Brekkuskóg í heimsókn í bústað til mömmu og pabba, var hvort eð er ekki að ganga vel í lærdómnum og gat alveg eins hangsað þar. Það var rosalega fínt, borðuðum góðan mat, spiluðum yatzi fram eftir nóttu og enduðum í pottinum. Afskaplega góð afslöppun. Ég ætlaði reyndar aldrei að nenna aftur í bæinn á sunnudeginum og byrjaði því seint að læra í gær. Mér tókst því ekki að klára planið í gær (sko eftir nýja skipulaginu) og þurfti því að klára það í dag. Annars er ég orðin miklu hressari í dag og vona að þetta gangi vel héðan í frá. Er samt fyrst núna að byrja á plani dagsins í dag og því verð ég að læra fram eftir kvöldi. Eins gott að skipulagið standist svo út vikuna svo ég geti staðið mig vel á prófinu.
...eplið búið og pásunni lokið - áfram lærdómur!
P.s. Vissuð þið að það er eitthvað örvandi efni í grænum eplum, það sagði Ásgrímur allavegana. Bara svona ef þið viljið sleppa, eða minnka notkun á, orkudrykkjum og kaffi
Lćrdómur
Það er líka orðið skuggalega stutt í ritgerðarskil, en þau eru 19.maí. En ég var búin að ákveða að leggja ritgerðina til hliðar fram yfir skynjunarsálfræðipróf en mér finnst samt hræðilega stressandi að vera ekkert að vinna í henni. Svo er hugurinn líka soldið fastur við sjálfsvitundarhugmyndina og allt í kringum hana þannig að einbeitingin helst ekki alveg við skynjun. En planið er að hella sér í ritgerðarvinnu eftir rúma viku og þá hef ég 20 daga til að gera ekkert annað en skrifa. Sem er nokkuð gott þar sem ég er nú ekki búin að skrifa staf í þessari ritgerð ennþá - en er samt búin að leggja rannsóknina fyrir, vinna soldið úr niðurstöðum og lesa helling af heimildum, en þar liggur sko mesta vinnan.
Annars er bara mest lítið að frétta, ég og Emil höfum það nokkuð gott í einsemdinni og erum þakklát fyrir að eiga hvort annað að. Ég er samt að pæla hvort ég eigi að skreppa upp í bústað til mömmu og pabba seinnipartinn og vera þar í nótt. Ég er hvort eð er ekkert að fara að læra í kvöld og það væri nú ósköp notalegt að borða með þeim og hafa það gott upp í bústað, og auðvitað fá móður- og föðurlega umhyggju sem flýtir ábyggilega fyrir bata í veikindum. Sé til hvað ég geri.
Bless í bili.
Veit ekki...
Voðalega á ég e-ð erfitt með að finna nöfn á svona færslur...
En allavegana... Núna er ég orðin ein í kotinu, ekki nóg með að Ásgrímur hafi farið í gær heldur fóru mamma og pabbi áðan upp í sumarbústað og verða fram á sunnudag. Ég var einmitt að elda mér kvöldmat og verð að segja að mér finnst afar sorglegt að elda ofan í einn. Ég held ég yrði vonlaus í að búa ein og verð því víst að finna mér karl áður en ég flyt að heiman. Einhverjir sjálfboðaliðar?
Annars er svo sem mest lítið að frétta. Er búin að vera að vesenast í atvinnuleit. Fór í tvö viðtöl í dag og gat fengið báðar vinnurnar en leist ekki nógu vel á, ætla því aðeins að íhuga málið. Ég er sem sagt að bíða eftir að mér verði boðið vel launað spennandi starf með góðum vinnutíma... er ég að ætlast til of mikils? Mér leist allavegana ekki á að vera meira og minna vinnandi á kvöldin í sumar, ég ætlaði eiginlega að nýta sumarið í að vera félasgleg og sinna vinunum þar sem ég get verið óskaplega andfélagsleg á veturna. Er fólk annars með einhverjar uppástungur varðandi vinnur?
Ég bið bara að heilsa í bili. Ætla að skipuleggja næstu daga aðeins og leggjast svo í leti. Ákvað að byrja bara að tækla skynjunina á morgun, þar sem dagurinn fór mest í vinnuvesen.
Sæl að sinni.
Búin ađ sćkja um og Ásgrímur farinn frá mér
Fannst ekki taka því að leggja mig eftir að ég kom heim því ég ætlaði á skrifstofu Félagsvísindadeildar kl.10 til að ganga frá umsókn. Dreif mig því bara í rækt og svo niður í skóla. Fann þar ágætis konu sem gat svarað öllum mínum spurningum og ég gekk frá og skilaði inn umsókn minni í Cand.psych.-nám með sérsviðin klínísk sálfræði og vinnusálfræði. Sá reyndar einn keppinaut minn á skrifstofunni, það komast sko bara 15 manns inn á ári, og því miður er ég nokkuð viss um að hún sé hærri en ég, djö.... En mikill léttir að vera búin að koma þessu frá. Svo bíður maður bara spenntur að heyra hvort ég komist inn eða ekki.
Lagði mig svo aðeins eftir hádegi, þar sem 3 og 1/2 tíma svefn er bara engan veginn nóg fyrir mig. Svaf lítið og illa og er því bara að spá í hangs og almenna leti í dag og byrja svo á fullu að læra Skynjunarsálfræði á morgun, en þá eru einmitt 10 dagar í skynjunarprófið.
Fleira hef ég ekki að segja í bili, hafið það nú gott!
Framhaldsnám...

Þannig er mál með vexti að umsóknarfresturinn fyrir framhaldsnám í sálfræði er til 18.apríl, og eins og glöggir lesendur vita þá er 15.apríl í dag... sem sagt afar lítill tími til stefnu. Ég er fullviss um að ég ætla að sækja um en vandamálið er að ég get engan veginn ákveðið hvaða svið ég á að velja til sérhæfingar. Valið stendur sem sagt um þrjú sérsvið sem eru klínísk sálfræði, þroska- og skólasálfræði og vinnusálfræði. Maður á sem sagt að velja tvö svið til að taka valnámskeið af. Lengi vel var ég 100% viss um að ég vildi læra klíníska + barnasálfræði, en í dag er ég í nokkuð miklum vafa því vinnu- og skipulagssálfræði hefur verið að kalla á mig. En þeir sem þekkja mig vel vita að skipulagssálfræði er eins og móðurskipið sé að kalla mig heim, þar sem ég er alvarlega skipulagssjúk. Svo ef við hugsum um peningana þá er vinnusálfræði pottþétt rétta valið. En ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera. Fékk þá snilldarhugmynd um daginn að læra klíníska og vinnusálfræði og fara svo út í master í mannauðsstjórnun og koma svo heim og stjórna einhverju góðu fyrirtæki, en fjölskyldan getur borið þess vitni að mér finnst síður en svo leiðinlegt að stjórna fólki. Þá hefði ég samt réttindi til að starfa sem klínískur sálfræðingur og gæti því alltaf skipt um starfsvettvang og opnað stofu með góðum, mjúkum sófa. En ég virðist samt ekki alveg tilbúin til að ákveða þetta því mér finnst barnasálfræðin afar áhugaverð, og þá sérstaklega hagnýt atferlisgreining í uppeldi, leikskólum og skólum. Er þannig stödd í dag að mig langar mest að taka bara allt saman, en þannig virkar þetta víst ekki.
Svo var ég að skoða námskeiðaúrvalið og hvernig það raðast upp á haust- og vorönn og ég fæ þetta engan veginn til að passa. Það er eins og það séu of fáar einingar kenndar á vorin, skil ekki alveg þetta skipulag. Þannig að ég þarf að fara upp á skrifstofu snemma á þriðjudaginn og reyna að fá svör við fullt af spurningum sem ég hef og klára svo umsóknina og skila. Maður þarf nefnilega að skila inn áætlun um það hvaða námskeið maður tekur á fyrsta árinu.... það er að segja ef maður kemst inn þar sem fjöldatakmörkunin er 15 manns á ári í cand.psych. nám.
Hafið þið einhverja skoðun á þessum pælingum (það er ef þið nenntuð að lesa þetta allt)? Á ég að finna business konuna inn í mér og skella mér í klíníska og vinnusálfræði? Eða á ég að halda mig við gamla 11 ára drauminn og verða barnasálfræðingur?


