Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Agnes Björg Tryggvadóttir
  • Netfang: agnest@hi.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Símanúmer: 6950728
  • Atvinna: Sálfrćđinemi

Auglýsing

Leit

Helgin

20. nóvember 2006 klukkan 20:09
Skemmtileg og viðburðarík helgi að baki.

Á föstudagskvöldið var partý tvö hjá sálfræðihópnum mínum. Hattaþemað heppnaðist vel og ég mætti með fjólubláan, loðinn nornahatt - virkilega smart. Partýið var ótrúlega vel heppnað.  Elsa mætti með mystery flask - sem ég by the way bauðst til að smakka á - OJ! Einnig var hjálpartækjaumræða tekin, hárkollumátun og töfraatriði, gítarspil og falskur söngur, dans og svona mætti lengi upp telja. Ótrúlega vel heppnað kvöld og maður tók hressilega á því. Laugardagurinn var reyndar ekki alveg jafn góður, en það er aukaatriði. En enn og aftur sýndi það sig hvað þetta er ótrúlega skemmtilegur hópur, ég er bara strax farin að hlakka til næsta djamms. Hlín, takk kærlega fyrir okkur. Já og myndirnar koma inn við tækifæri.

Á laugardagskvöldið keyrði ég upp á Akranes þar sem Haddi vinur hennar Önnu Maríu var búinn að boða mig í surprise afmælispartý fyrir hana. Anna á sem sagt afmæli í byrjun desember og oftast eru allir í prófum á þessum tíma og því fer lítið fyrir afmælisveislum. Hann skipulagði því óvænta afmælisveislu og við vorum nokkrar vinkonur úr bænum mættar á staðinn. Anna hélt að hún væri að koma í matarboð til Hadda og andlitið gjörsamlega datt af henni þegar hún sá okkur. Ótrúlega vel heppnað. Haddi var síðan búinn að útbúa þvílíkar kræsingar og ég át í burtu þynnkuna. Ég verð samt að fá uppskrift af þessari eplaköku, come on ég sem borða ekki eplaköku hámaði hana í mig eins og ég fengi borgað fyrir það. Síðan drakk ég nokkra kokteila Önnu til samlætis og við skelltum okkur svo aðeins á Mörkina, sem er skemmtistaðurinn á Akranesi (sá eini). Þegar við ætluðum svo heim til Hadda, þar sem við ætluðum að sofa, þá var veðrið orðið brjálað og við sáum varla fram fyrir okkur. Við komumst þó heilu höldnu heim til hans og gistum nokkur þar. Sem sagt vel heppnað partý og Haddi og Nína fá mikið hrós fyrir að hafa haft fyrir þessu. Daginn eftir leit þetta nú ekki beint vel út fyrir heimferð, enda vitlaust veður. Ég var þó á jeppanum þar sem pabbi hafði heimtað að skilja hann eftir handa mér. Ég hangsaði því aðeins heima hjá Önnu, fengum okkur að borða og fórum í sturtu - samt í sitthvoru lagi sko. Ég kíkti síðan aðeins á hana Ömmu gömlu og brummaði svo heim. Keyrði nánast alla leiðina á 50 km/klst í hálku, roki og brjáluðum skafrenningi. En komst heil heim. Anna mín, takk kærlega fyrir gott kvöld, nótt og dag.

Eðlilega varð því lítið úr lærdómi þessa helgina og þarf ég því að taka vel á því þessa vikuna. Ýmislegt framundan og skuggalega lítið eftir af skólanum. En gott að taka svona góða félagslega helgi, maður er alveg endurnærður eftir þetta.

Heyri í ykkur síðar. Hafið það gott. Bless.

Partý partý - Gaman gaman

17. nóvember 2006 klukkan 21:26
Hver í ósköpunum stendur fyrir þessum helv... kulda úti? Ég hélt ég yrði úti í morgun á leiðinni frá bílastæðinu að Lögbergi, en ég hafði það af í þetta skiptið.

Foreldraeiningin er farin til Rómar í 19° hita og skilur okkur blessuð börnin eftir heima í þessu frosti. Hvers konar foreldrar eru þetta, maður spyr sig.

Partý í kvöld - get ekki beðið.
Verðandi sálfræðingar að skralla - getur sko ekki klikkað.
Hattaþema og alles - búin að finna hatt og verð geðveikt töff.
Ekki laust við að maður sé kominn með galsa - spurning um að læra bara með kokteil sér við hlið!

The end.

Hvađ er ađ frétta?

14. nóvember 2006 klukkan 01:14
Síðasta vika fór mest megnis í slappleika, þreytu og leti þannig að afskaplega lítið varð úr lærdómi. Ég nýtti tímann þó í staðinn og var einstaklega félagsleg og hitti marga sem ég hef ekki séð lengi.

Byrjaði á því að á þriðjudagskvöldið var saumó hjá Ellý en í þessum hópi eru gömlu FB vinkonurnar og við hittumst sko alltof sjaldan. Allar komust nema ein og við áttum gott spjallkvöld auk þess sem við gæddum okkur á ótrúlega gómsætri daimtertu.

Á miðvikudagskvöldið var svo loksins sálfræðistelpuhittingur. Við BA-vinkonurnar hittumst á kaffihúsi og spjölluðum heilmikið og hlógum þrátt fyrir pirrandi sígarettureyk. Þarf varla að minnast á það að ég get varla beðið eftir reyklausum veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi. Einnig fannst okkur ótrúlega skrýtið hversu erfitt er að fá eitthvað nart á kaffihúsum í dag, en við fórum á tvö kaffihús og á hvorugu gátum við fengið neitt annað en rándýra drykki. En ótrúlega skemmtilegt kvöld. Næsta áskorun er að finna kvöld sem hentar fyrir djamm með þessum stelpum, spurning hvort það takist nokkuð fyrr en í jólafríinu.

Á fimmtudagskvöldið fór ég svo í afmæliskaffiboð til Hörpu og var það rosalega fínt. Spjallaði heilmikið við systurnar Hörpu og Svövu, já og svo auðvitað eitthvað við hina gestina líka. Svo át maður að sjálfsögðu á sig gat enda hellingur af girnilegum veitingum í boði - hún er svo myndarleg hún Harpa. Þegar ég fór svo heim var komið brjálað veður og Carmen hristist öll til alla leiðina heim.

Við Kolbrún gerðum svo tilraun til að hittast um helgina en tókst ekki þannig að helgin fór bara í rólegheit, videogláp og lærdóm.

En eftir þessa góðu félagslegu viku er ég næstum búin að hitta alla sem ég umgengst svona reglulega. Þarf að gera aðra tilraun með Kolbrúnu við fyrsta tækifæri og svo stefnum við Anna María á hitting í vikunni. Nokkuð góður árangur, þá get ég hunsað alla með góðri samvisku í lokatörninni í skólanum
Glottandi

Þessi vika á svo að fara í lærdóm og ekkert nema lærdóm - auðvitað fyrir utan So you think you can dance hitting hjá Hafdísi og Sveinbirni og date með Önnu Maríu - því á föstudaginn er komið að djammi númer tvö hjá sálfræðibekknum mínum. Verður bókað svaka stuð. Gott að hafa gulrót í enda vikunnar, hvetur mann til að vera duglegur.

Nóg komið af kjaftæði í bili.
Góðar stundir.

Spurningar

10. nóvember 2006 klukkan 20:01
Hún Hafdís var svo yndisleg að skora á mig að skella þessu inn á síðuna mína. Ég hafði fyrir því að svara þessu fyrir hana þannig að nú heimta ég góð viðbrögð fólk - fyllið þetta út í kommentunum takk!

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefurðu?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Kossar

07. nóvember 2006 klukkan 15:18



You're an Expert Kisser



You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantity

You've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks off

And you're adaptable, giving each partner what they crave

When it comes down to it, your kisses are truly unforgettable

What Kind of Kisser Are You?


Hvað finnst ykkur, ætti ég að skella þessu inn í einkamálaauglýsinguna mína?

Tölfrćđi - frídagur - veđriđ

05. nóvember 2006 klukkan 18:04
Nóvember mættur á svæðið og alveg nóg að gera. Merkilegt hvað tíminn flýgur áfram, áður en maður veit af verður önnin búin og jólin komin.

Síðastliðna vika fór öll í tölfræðiverkefni með tilheyrandi pirringi og hausverkjum. En ég skila sem sagt einu tölfræðiverkefni á eftir, á sko eftir að lesa það almennilega yfir, og svo öðru á þriðjudaginn. Mætti halda að sumir kennarar haldi að maður sé í einu fagi en ekki fimm. En eftir mikla tölfræðivinnu var ég gjörsamlega búin á því og opnaði ekki einu sinni bók í allan gærdag. Ég svaf bara út - í dag kallast það að sofa til rúmlega tíu að sofa út - spjallaði heilmikið við Ásgrím og eftir miklar vangaveltur varð niðurstaðan sú að hvorugt nenntum við að læra og ákváðum frekar að fara aðeins út að vesenast. Við kíktum á fatamarkað í Fellsmúla sem var afspyrnu lélegur en ákváðum svo að kominn væri tími á að við heiðruðum nýja stóra IKEA með nærveru okkar. Þar sem Ásgrímur er IKEA-kóngur með meiru þá var sko löngu kominn tími til að hann tékkaði á nýju búðinni. Okkur leist bara nokkuð vel á en vá hvað hún er stór. Við blönku námsmennirnir keyptum samt ekkert en ég fann samt hillusamstæðu sem mér leist rosalega vel á, ætla aðeins að íhuga hana betur. Restin af deginum fór svo í enn meiri leti og kvöldið í að glápa á Ice Age 2. Virkilega fínn dagur og sá fyrsti í ansi langan tíma þar sem ég lærði akkúrat ekki neitt og gerði bara það sem mér sýndist. En í staðinn þarf ég að gera ýmislegt í dag en það var vel þess virði að fá smá frí.

En svo er það helvítis veðrið. Frá því ég var krakki hef ég aldrei getað sofið í hávaðaroki og það hefur sko ekkert breyst. Ég var sem sagt vöknuð fyrir klukkan sex í morgun og náði varla neitt að sofna aftur. Veit ekki alveg hvað er málið en þegar ég heyri í svona vondu veðri þá sef ég einfaldlega ekki. En jákvæði punkturinn við þetta er að ég byrjaði þá bara snemma að læra í morgun.

Eitt enn, ég er nú ekki beint þekkt fyrir að vera pen en brussuskapur minn á sér ekki mikil takmörk. Á föstudagsmorguninn var ég komin niður í skóla um það leyti sem tíminn átti að byrja og þurfti að leggja ansi langt frá Lögbergi þar sem tíminn var haldinn. Brussuskapur minnkar ekki beinlínis þegar maður er að flýta sér en á einhvern snilldarlegan hátt tókst mér að skella bílhurðinni á kálfann á mér. Vá hvað þetta var sárt, ég var auðvitað viss um að sokkabuxurnar hefðu rifnað og blóðið flæddi úr fætinum á mér en nei þetta var ekki svo slæmt. Ég haltraði síðan þessa fáránlegu löngu leið frá bílastæðinu að Lögbergi og náði í tímann. Núna er síðan að myndast þessi líka hlussustóri marblettur á kálfanum á mér, hann stefnir í að verða ansi hreint fallegur. Ótrúlegt hvernig maður meiðir sig oft mest sjálfur, skiljið þið mig?

Tónlist

31. október 2006 klukkan 15:52
Er það bara ég eða er óvenjumikið af spennandi nýrri íslenskri tónlist þessa dagana? Mér finnst eitthvað svo mikið af nýjum áhugaverðum tónlistarmönnum að koma fram. Ekki það að ég hafi mikinn tíma í tónlistarpælingar þessa dagana en þegar ég slappa af þá verður lágstemmd íslensk tónlist oft fyrir valinu. Ég verð sérstaklega að nefna að diskurinn hans Togga hefur varla farið úr spilaranum síðan ég keypti hann. Síðan lenti ég óvænt á tónleikum með Fabúlu um daginn sem voru ótrúlegir, þannig að ég ætla að tékka á þeim diski við fyrsta tækifæri. Fabúla er reyndar ekkert ný í bransanum en þetta er samt í fyrsta skipti sem hún vekur virkilega eftirtekt mína. Eftir tónlistarsamræður við Ástu um daginn fór ég síðan að hlusta á Lay Low sem ég er að fíla í botn, verð að eignast diskinn hennar við tækifæri. Svo er ég aðeins byrjuð að tékka á Pétri Ben því ég hafði heyrt svo mikið gott um hann og líst bara nokkuð vel á. Síðan finnst mér Emilíana Torrini alltaf góð og bíð spennt eftir nýju efni frá henni og Ampop standa fyrir sínu - ég á reyndar eftir að taka nýja diskinn almennilega í hlustun. Þannig að ég vil íslenska tónlist í jólagjöf, blankir námsmenn hafa auðvitað ekki efni á að kaupa alla diska sem þeim langar í. En þessar My Space síður eru gjörsamlega að bjarga manni, maður fær allavegana að smakka aðeins á tónlistinni og athuga hvort þetta sé eitthvað fyrir sig - mjög sniðugt.

Í framhaldi af þessu, eru einhverjir fleiri í svipuðum geira sem þið viljið benda mér á?

Eitt og annađ

28. október 2006 klukkan 16:50
Er ekki löngu kominn tími á að skipta um könnun?
Niðurstöður þeirrar síðustu voru að One Tree Hill hefur rétt svo vinninginn yfir The OC með 33% atkvæða á móti 25%. Bæði betra var svar 17% en heil 25% sögðust horfa á hvorugt, shocking!
Ég setti enn eina ófrumlega könnun inn, það er nú jafnvel spurning um að hætta þessu könnunadæmi.

Á fimmtudagskvöldið fór ég á kaffihús með Ástu enda alltof langt síðan við höfðum spjallað almennilega. Við enduðum á Rosenberg á tónleikum með Fabúlu og vá hvað þetta var flott. Þvílík rödd sem manneskjan er með. Ótrúlega skemmtilegt kvöld, almennilegt spjall með gullfallegri live tónlist í kaupbæti. Við Ásta tókum einmitt mikla tónlistarumræðu í kjölfarið og ég er komin með fullt af nýjum listamönnum til að tékka á, bara gaman. Núna þarf ég bara að finna tímann til þess, en það er hins vegar annað mál.

Núna er ég bara á fullu í fyrirlestragerð, gengur bara alveg hreint ágætlega. Vonandi að ég komist langt með þetta í dag svo ég geti prófað að flytja hann á morgun, bætt hann og tékkað á tímanum sem hann tekur. Annars er ég með verkefni sem ég þarf að fínpússa fyrir mánudaginn og svo er líka próf á mánudaginn sem væri gott að geta aðeins lesið fyrir. En það verður bara að koma í ljós, fyrirlesturinn gengur fyrir enda gildir hann heil 35% af einkunn í þessu námskeiði.

Annars er ég bara hress!


Bla...

25. október 2006 klukkan 21:54
Blessuð
Ég hef nú mest lítið að segja þessa dagana, brjálað að gera í skólanum og á mánudaginn held ég 90 mínútna fyrirlestur. Hugsa að allur minn tími fari í það næstu dagana. En þetta er frekar fjölbreytt efni sem ég er með, á 90 mínútum á ég að fjalla um mat á jaðarpersónuleikaröskun, mat á röskunum hjá eldra fólki og enda svo á sameiginlegum flötum atferlisstefnu og taugasálfræði. Spennandi, ekki satt?

Annars var ég að hugsa um að fara að skipta um könnun en ég er gjörsamlega tóm í kollinum. Koma með hugmyndir takk, er að reyna að halda smá lífi í þessari síðu.

Annars er ágætt að hafa blogg til að láta svona aðeins vita af sér því ég hitti vinina ekkert sérstaklega oft. Eins gott að krakkarnir í skólanum eru svona skemmtilegir því annars væri ég að rotna félagslega. Ég hef nú reyndar verið dugleg að kíkja til Hafdísar og Sveinbjörns því við Hafdís erum í símaátaki og reyna að spjalla frekar reglulega face-to-face og draga úr símavændinu. Svo er Ásta skvís á dagskránni í þessari viku þar sem ég hef bara ekki hitt hana heillengi, enda er hún alltaf svo agalega busy stelpan.

Þannig að ég spyr bara, hvað er annars að frétta af ykkur?

Djammerídjamm

22. október 2006 klukkan 19:07
Loksins kom að því, mín datt í það!

Á föstudagskvöldið var langþráð djamm okkar cand.psych.nema og vá hvað það var gaman. Hún Snædís var svo hugguleg að halda partý og mætingin bara mjög góð. Ótrúlega gaman að hitta þessa krakka í öðru umhverfi en í skólanum og hópurinn passar þvílíkt vel saman. Það var drukkið, spjallað, hlegið, sungið og dansað - allt sem almennilegt partý þarf að hafa. Við skemmtum okkur svo vel að við fórum ekki einu sinni í bæinn og það kalla ég vel heppnað partý. Einn hápunktur kvöldsins hlýtur að vera þegar gestgjafinn sjálfur sprakk svona svakalega úr hlátri með munninn fullan af skemmtivökva að það frussaðist út um allt! Sumir sýndu góða einkadansaratakta og aðrir leyfðu sönghæfileikunum að blómstra. Við Elsa sýndum og sönnuðum að við erum vanhæfar um að taka mynd af okkur sem sýnir hvað við erum svakalega sætar, hlýtur að vera eitthvað að myndavélinni minni! Sem sagt í heildina alveg hreint frábært kvöld og alveg nauðsynlegt að fá svona góða útrás. Takk fyrir kvöldið krakkar mínir! Hérna getið þið skoðað hvað þetta er fríður hópur.

Image Hosting by PictureTrail.com
Hérna er ein af fjölmörgum tilraunum okkar Elsu til að myndast vel!

Á laugardaginn var ég alveg ótrúlega hress miðað við aðstæður, var bara nokkuð góð eftir einn hamborgara og eyddi síðan deginum í hálf-misheppnuðu ættingjaboði. Sem sagt enginn lærdómur og ég er að reyna að sparka mér aftur í gírinn í dag.

Tilvitnun vikunnar

Education is what survives when what has been learned has been forgotten.
- B. F. Skinner -