Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Agnes Björg Tryggvadóttir
  • Netfang: agnest@hi.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Símanúmer: 6950728
  • Atvinna: Sálfrćđinemi

Auglýsing

Leit

Hitt og ţetta

09. október 2007 klukkan 10:23
Sumarblogglægðin virðist ætla að halda sér fram á veturinn líka en bara svo þið vitið þá er ég ennþá á mínum stað og allt gengur sinn vanagang.

Það er meira en nóg að gera í skólanum og starfsþjálfunin er að komast í ágætis gang. Ég er líka búin að hella mér í lokaverkefnispælingar en ég þarf sem sagt að gera 15 eininga lokaverkefni á næstu önn og þarf að tilkynna hvert verkefnið mitt verður í þessum mánuði. Ég er búin að fara á fund í sambandi við eitt mjög spennandi verkefni og það ætti að skýrast á næstu dögum hvort það gangi allt saman upp. Ég fór svo á réttarsálfræðiráðstefnu á föstudaginn og laugardaginn sem var bara mjög áhugaverð. Maður er orðinn svo fullorðins að sitja svona ráðstefnur.

Annars er ansi margt að gerast í fjölskyldunni í næstu viku og því verð ég að læra frá mér allt vit í þessari viku svo ég hafi meira svigrúm í þeirri næstu. Arnþór litli frændi kemur heim í haustfrí á föstudaginn og verður í rúma viku. Við fjölskyldan ætlum að reyna að púsla lausum tíma okkar saman svo Andri bróðir þurfi ekki að taka heila viku í frí í vinnunni. Þannig að ég tek frá lausan tíma fyrir litla frænda enda allt of langt síðan við höfum brallað eitthvað skemmtilegt saman. Auk þess fær Ásgrímur íbúðina sína afhenta á mánudaginn og þá tekur við málningarvinna og flutningur sem ég stefni auðvitað á að hjálpa helling við. Þannig að það stefnir allt í lítinn tíma fyrir lærdóm í næstu viku en verður ábyggilega skemmtileg vika. Og enn stendur eftir stóra spurningin: Á ég að flytja að heiman?

Ég er búin að fara að skoða bústaðinn hjá foreldrunum og hann er bara ósköp sætur. Það er í það minnsta það mikil ró þarna að við systkinin sofnuðum öll í þessari dagsheimsókn okkar í bústaðinn, geri aðrir betur. Ég get því ekki beðið eftir að komast þangað heila helgi við tækifæri og leyfa stressinu að leka úr líkamanum.

Síðast en ekki síst... Hafdís er ÆÐI!


Fréttaskot

21. september 2007 klukkan 14:38
Sæl og blessuð

Í fréttum er þetta helst:

  • Ásgrímur er búinn að kaupa íbúð í Mávahlíð og fær hana afhenta 15. október.
  • Ég skipti um skoðun frá degi til dags hvort ég eigi að flytja að heiman með honum og leigja herbergi eða njóta síðasta skólavetrarins í foreldrahúsum.
  • Mamma og pabbi keyptu sér sumarbústað sem þau fá líklega afhentan á eftir þannig að ég get farið á morgun og skoðað hann loksins.
  • Já mamma og pabbi skiluðu sér að lokum heim frá Slóveníu.
  • Skólinn er byrjaður af ágætis krafti og ég er að finna lærdómsdugnaðargírinn.
  • Ég byrjaði formlega í starfsþjálfun í gær á Grensás.
  • Ég fór á afskaplega skemmtilegt reunion úr Hólabrekkuskóla í byrjun mánaðarins.
  • Ég ætla ekki að djamma mikið á næstunni því skólinn virðist þurfa allan minn tíma.
  • Ég ákvað að vinna ekki með þessa önnina en ætla að sjá til þá næstu.
  • Þar sem ég er orðin eldri og virðulegur framhaldsnemi fer ég í partý í kvöld þar sem við hin eldri og vitrari ætlum að bjóða nýju kandnemana velkomna.
  • Við Anna fórum á tónleika í gær gegn rasisma og sáum nokkrar áhugaverðar hljómsveitir.
  • Ásta vinkona skilar BA-ritgerðinni sinni í dag, þrefalt húrra fyrir Ástu: Húrra, húrra, húrra!
  • Ég er ömurlega léleg í að læra á föstudögum.

Fleira var það ekki í bili. Yfir.

Mjög spes

16. september 2007 klukkan 14:05
Hversu sérstakt er að vera staddur erlendis í fríi og kvöldið fyrir brottför er miða rennt undir hótelherbergishurðina sem segir að fluginu heim daginn eftir hafi verið aflýst?

Já... by the way... mamma og pabbi koma víst ekki heim í dag!

Talandi um nostalgíu

15. september 2007 klukkan 12:01
Kærleiksbirnir... stara!

Skólinn byrjađur

03. september 2007 klukkan 15:41
Jæja þá er skólinn byrjaður aftur. Það er ótrúlegt hvað þetta sumar leið hratt og haustið læddist einhvern veginn aftan að manni. Í dag fór ég í minn fyrsta tíma þessa önnina en það var Vinnuheilsusálfræði. Leist bara nokkuð vel á þetta fag enda finnst mér streita og afleiðingar streitu mjög áhugavert efni. Á morgun fer ég í Meðferð sálmeina á fullorðinsárum en sá kúrs virðist ætla að byrja af miklum krafti þar sem ég þarf að lesa helling af köflum fyrir tímann. Á miðvikudaginn er svo tími í þriðja faginu sem kallast Starfsmannaval og frammistöðumat. Ég bíð síðan spennt að heyra meira um starfsþjálfunina en ég fer í starfsþjálfun á Sálfræðiþjónustu Landspítalans sem sér um sálfræðiþjónustu við sjúklinga vefrænna deilda spítalans (það er sko allt fyrir utan geðið). Ég veit ekki hvernig tilhögun starfsþjálfunarinnar verður né hjá hverjum ég verð þannig að ég fæ vonandi sem fyrst að vita meira því ég vil byrja sem allra allra fyrst svo ég klári þessa þjálfun nú á skikkanlegum tíma.

Svo er spurning um að fara að vera duglegri í ræktinni líka og reyna að púsla þessu öllu skynsamlega saman. Nú er ný stundaskrá byrjuð í Sporthúsinu og Baðhúsinu og því úr nógu að velja. Mér finnst nú mun skemmtilegra að fara í tíma en æfa sjálf í sal og stefni á að skella mér í BodyCombat og kýla og sparka á eftir. Mér veitir ekki af einhverju hressandi þar sem ég er að leka niður úr syfju hérna. Það er ótrúlega mikil áskorun að halda einbeitingu við lestur þegar maður er að hefja námið aftur eftir sumarpásuna. Ég er samt að lesa mjög áhugavert og skemmtilegt efni og bækurnar eru ekki mjög torskildar (miðað við margt) en samt draga rigningar- og vindhljóðin svoleiðis úr mér allan kraft að mig langar mest upp í rúm. En ætla ekki að láta það eftir mér, frekar læra fram að rækt og fara þá frekar fyrr að sofa í kvöld. Um að gera að koma rútínu á sig sem fyrst svo maður fúnkeri betur í skólanum.

Annars fóru mamma og pabbi til Slóveníu í gær og verða þar í tvær vikur. Ég er svona nett öfundsjúk yfir þessari ferð þeirra og hefði sko virkilega verið til í að komast eitthvert út í hvíld áður en skólinn byrjaði. En ég fer bara eitthvert skemmtilegt á næsta ári. Við Ásgrímur erum því ein heima næstu tvær vikurnar þannig að ég þarf víst að vera myndarleg húsmóðir, nokkuð ljóst að heitur matur mun ekki bíða á borðum þegar ég kem svöng heim eða hreinn þvottur birtast allt í einu tilbúinn að fara í skápana. Maður kann alltaf extra vel að meta Hótel mömmu og pabba þegar maður neyðist til að sjá alveg um sig sjálfur!

Fleira er það ekki í bili. Ætla að halda áfram að lesa mér til um hugræna atferlismeðferð svo ég geti nú bjargað geðheilsu ykkar einhvern daginn!

Síđasti vinnudagur sumarsins

28. ágúst 2007 klukkan 13:55

Vá hvað það er erfitt að halda einbeitingunni og sinna vinnunni síðasta vinnudag sumarsins... spurning hversu mikið gagn maður er að gera!

Annars ætla ég í bíó eftir vinnu á
The Bridge sem fjallar um sjálfsvíg á Golden Gate brúnni, virkilega áhugaverð heimildamynd að ég held.

Tileinkađ Önnu Maríu

24. ágúst 2007 klukkan 08:24

Já það hefur sko lítið verið bloggað undanfarið, líklega af því að ég er búin að vera meira og minna lasin í ágúst og dettur ekki í hug að segja ykkur frá óhóflegu Ally McBeal glápi mínu eða lungnavandræðum.

Það sem stendur hins vegar upp úr í ágúst... so far... er að sjálfsögðu Gay pride. Ég var svona sæmilega hress þá helgi og gat tekið góðan þátt í hátíðarhöldunum. Við Ásgrímur og Sigrún skelltum okkur í bæinn að horfa á gleðigönguna í sumarblíðunni og var dagurinn alveg ótrúlega skemmtilegur. Um kvöldið fór ég ásamt nokkrum útvöldum á Gay pride ballið á NASA með Páli Óskari og hann stóð sko fyrir sínu. Ótrúlega skemmtilegt ball og ég hef ekki dansað svona mikið lengi lengi. Virkilega skemmtilegur dagur og kvöld - hver kemur með á Gay pride á næsta ári?

Annars er mest lítið að frétta. Sumarið er búið að fljúga áfram og allt í einu er haustið að læðast aftan að manni. Ég er nú ekki alveg tilbúin að fara að byrja í skólanum strax en herlegheitin hefjast 3.september. Þessa önn á ég víst að vera á fullu í starfsþjálfun, taka þrjá kúrsa og undirbúa lokaverkefni. Skil ekki alveg hvernig þetta á að hafast... en það reddast eins og alltaf. Þar sem ég tók mér ekkert sumarfrí, fór ekkert til útlanda eða neitt slíkt þá ákvað ég að ég ætti það skilið að taka mér smá frí áður en skólinn byrjar og hætti því að vinna eftir næstkomandi þriðjudag. Þannig bý ég mér til fimm daga sumarfrí sem ég ætla að njóta og vonandi verð ég endurnærð eftir það og tilbúnari að fást við skólann, kvíðann og kröfurnar! Næsta vika verður þá líklega nýtt í að vera afskaplega félagsleg, sinna vinunum og gera eitthvað skemmtilegt - endilega verið í bandi!

Jæja, farin að vinna. Þýðir ekkert að mæta snemma til að koma hlutunum í verk og hangsa svo bara á netinu. Heyrumst.

Ömurleg verslunarmannahelgi

08. ágúst 2007 klukkan 17:12
Já þessi verslunarmannahelgi var aldeilis skemmtileg... eða þannig!
Ég er sem sagt búin að vera veik frá því seinnipartinn á föstudag en stefni á að mæta aftur til vinnu á morgun. Virkilega skemmtilegt að hitta ekkert fólk, fyrir utan fjölskylduna auðvitað, og vera ýmist upp í rúmi eða sófa allan þennan tíma. En ég horfði nú á allar Lord of the rings myndirnar, nokkrar stelpumyndir, Despó þætti og auðvitað Friends sem huggar mann alltaf í veikindum. Já og svo las ég auðvitað líka. Vonandi að þið hafið skemmt ykkur betur þessa helgi en ég!

Þar sem verslunarmannahelgin var svona misheppnuð hjá mér stefni ég eindregið á mjög skemmtilega Gay Pride helgi. Það er nú reyndar ekki mikið planað annað en að ég ætla pottþétt að kíkja á gönguna og svo á ballið um kvöldið. Smáatriðin í kringum þetta planast bara þegar nær dregur. Núna er ég að einbeita mér að því að ná mér almennilega svo ég geti verið eiturhress um helgina. Endilega verið í bandi ef þið viljið taka Gay Pride skrall með mér
Brosandi

Jæja, ætla að hætta þessu tölvuhangsi og henda mér í sófann.
Verið sæl að sinni.

Spređ

02. ágúst 2007 klukkan 16:25

Það er dýrt að vinna rétt hjá Kringlunni, vera einn í hádegismat og hafa ekkert að gera! Hádegishléið mitt í dag kostaði mig allavegana dágóðan skilding.

Hjúkk, vinnufélaginn minn (sem ég er mest með) mætir aftur í vinnuna í næstu viku og þá verður sparað.

Hvað er fólk annars að fara að gera um helgina? Þið megið endilega hafa samband ef þið eruð að gera eitthvað skemmtilegt í bænum (sko bara Reykjavík almennt en ekki endilega miðbænum) eða nálægt honum Brosandi Það er sem sagt akkúrat ekkert planað hjá mér annað en að hafa það gott og njóta frísins.

Afmćlispartý

30. júlí 2007 klukkan 09:24
Ég hélt smá afmælispartý á laugardaginn í tilefni af því að afmælisdagurinn kom upp á laugardegi. Fyrirfram átti ég nú ekki von á að margir kæmust enda hásumar og fólk yfirleitt mjög upptekið eða út úr bænum á þessum tíma. Mætingin var svo miklu betri en ég átti von á, fullt af skemmtilegu fólki mætti og þetta var bara alveg ofboðslega gaman. Ég ákvað að skella í smá bollu enda fólk farið að vera með vissar væntingar þegar það kemur í partý í Vesturbergið. Eftir vel heppnað partý var kíkt í bæinn en það verður að viðurkennast að ég skil bæinn bara ekki lengur. Hugsa að ég sleppi bænum í bili, nema eitthvað sérstakt sé í gangi. En meðan ég flakkaði milli staða í bænum voru Ásgrímur og Anna heima að taka til og þrífa þannig að ég þurfti mest lítið að gera á sunnudeginum. Þau eru svo myndarleg þessar elskur. Takk kærlega fyrir kvöldið þið sem mættuð og takk enn og aftur fyrir mig - ég hef bara sjaldan fengið eins flottar afmælisgjafir.

Enn sem komið er eru engin plön hjá mér fyrir Verslunarmannahelgina þannig að ég hugsa að ég taki því bara rólega þá helgi. Verður frábært að fá þriggja daga helgarfrí og ég ætla mér sko að njóta þess.

En svo er gaypride helgina þar á eftir og þá ætla ég sko að skralla. Hvet fólk eindregið til að taka þátt í gaypride og skella sér á ball með Páli Óskari á laugardagskvöldinu. Þetta var sko óendanlega skemmtilegt í fyrra og verður ábyggilega ekki síðra í ár. 

Farin að sinna vinnunni - læt heyra í mér síðar!
                                                                   

Tilvitnun vikunnar

Education is what survives when what has been learned has been forgotten.
- B. F. Skinner -