Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Agnes Björg Tryggvadóttir
  • Netfang: agnest@hi.is
  • Staður: Reykjavík
  • Símanúmer: 6950728
  • Atvinna: Sálfræðinemi

Auglýsing

Leit

Ökuníðingurinn Agnes

30. nóvember 2007 klukkan 09:14
Jólagjöfin mín í ár verður..... hraðasekt! Jú jú haldið þið ekki að einhver kvikindisleg myndavél hafi blikkað mig á Stekkjabakkanum í gærmorgun. Alveg hreint týpískt, ég sem fæ oftar en ekki skot fyrir að keyra á of löglegum hraða fæ hraðasekt eftir að hafa runnið ljúflega niður brekkuna. Ég býð spennt eftir að fá sektina og sjá hvað hún verður há, það er varla að maður þori að eyða neinu þangað til það er komið á hreint, ekki eins og ég eigi drjúga sjóði falda einhvers staðar. Þetta sýnir bara áhrif stressins, auðvitað var ég ekkert að horfa á hraðamælirinn þar sem ég var að drífa mig í viðtal, þannig að auðvitað var ég að keyra of hratt og auðvitað er þetta sjálfri mér að kenna og engum öðrum. En samt... mjög pirrandi, ekki alveg það sem blankur námsmaður þarf á að halda svona rétt fyrir jólin. Spurning um að ég föndri bara jólagjafirnar í ár!
 
Ási
Já... níðingur ertu!
Reynir að telja öllum í trú um að þú sért góða stelpan... en... ert afbrotamaður!
#1
02. desember 2007 klukkan 21:21
 
Anna María
Hahah ææ greyið litla...

Það er kominn desember... manst að hugleiða ræktina núna ;)
#2
03. desember 2007 klukkan 12:26

Skrifa athugasemd

Tilvitnun vikunnar

Education is what survives when what has been learned has been forgotten.
- B. F. Skinner -