Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Agnes Björg Tryggvadóttir
  • Netfang: agnest@hi.is
  • Staður: Reykjavík
  • Símanúmer: 6950728
  • Atvinna: Sálfræðinemi

Auglýsing

Leit

Þrjú eftir...

01. nóvember 2007 klukkan 10:27
Þá er Ásgrímur fluttur að heiman. Við fórum með restina af dótinu hans í fyrradag niður í Mávahlíð þannig að nú er ég eina barnið eftir í kotinu. Svo er maður í miðri aðlögun að því að búa bara fjögur hérna heima og þá stinga mamma og pabbi af til Amsterdam þannig að við Emil erum ein heima fram á sunnudag. Jáhá... þetta er harður heimur (ég veit að ég er 24 ára). Það er eins gott að ég nýti þá helgina vel, ég þarf að skila 30% meðferðarskýrslu á þriðjudaginn og sé ekki fram á að geta byrjað fyrr en á laugardaginn... úps!

Allt fínt að frétta. Ásta mín er útskrifuð og hélt skemmtilegt hljóðfæraútskriftarpartý á laugardaginn. Svo átti Fjóla afmæli og bauð okkur stelpunum í lítið afmælisboð í gærkvöldi, alltaf gaman að hittast svona. Annars gengur lífið sinn vanagang, núna eru flest lokaverkefnin komin þannig að maður þarf að finna tíma í þau. Auk þess þarf ég að klára umsóknir til Siðanefndar og Persónuverndar fyrir 22. nóvember og þessar umsóknir eru sko hellings vinna sem ég hef ekki alveg tíma í núna. Svo er auðvitað starfsþjálfun í fullum gangi og ég þyrfti helst að geta bætt inn meiri tíma í hana svo mér gangi hraðar að safna tímum. Þannig að næstu vikur/mánuðir verða geðveikir, það er eins gott að ég finni ofurdugnaðinn í mér.

Eruð þið ekki annars bara hress?
 
Anna María
Já það er aldeilis brjálað að gera hjá þér þessa dagana...

Ég er annars bara spræk, er svona að koma mér í lærdómsgírinn, gengur ekkert alltof vel! En ég meina þetta er bara fyrsta önnin...

Verðum í bandi þegar allt fer að róast hjá þér :)
#1
02. nóvember 2007 klukkan 17:37
Agnes Björg TryggvadóttirJæja Anna mín... það er kominn nóvember... er ekki kominn tími til að SPARKA sér í lærdómsgírinn :)

Já við verðum í bandi sem fyrst, kannski bara seinnihluta vikunnar!
#2
04. nóvember 2007 klukkan 07:56

Skrifa athugasemd

Tilvitnun vikunnar

Education is what survives when what has been learned has been forgotten.
- B. F. Skinner -